Eiður Smári kom eiginkonunni á óvart 7. júlí 2007 10:30 Eiður Smári Guðjohnsen kom eiginkonu sinni, Ragnhildi Sveinsdóttur, á óvart með glæsilegri grillveislu á fimmtudagskvöld. Hér eru hjónin með yngsta syni sínum í fyrra. Í baksýn er Arnór, faðir Eiðs. MYND/GVA
Eiður Smári Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og hélt óvænta afmælisveislu fyrir konuna sína, Ragnhildi Sveinsdóttur, síðastliðið fimmtudagskvöld. Ragnhildur verður þrítug á morgun, 8. júlí, en Eiður tók forskot á sæluna og efndi til veislu í garðinum við heimili þeirra í Fossvogi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var þar slegið upp stórri útigrillveislu með öllu tilheyrandi, en það var góðvinur Eiðs Smára, sjónvarpsmaðurinn Sverrir Sverrisson, sem sá um skipulagningu hennar. Auk fjölskyldumeðlima afmælisbarnsins og Eiðs Smára mættu knattspyrnumennirnir Ríkharður Daðason, Birkir Kristinsson og Guðni Bergsson í veisluna. Það gerði sömuleiðis Ragna Lóa Stefánsdóttir en eiginmaður hennar, Hermann Hreiðarsson, var fjarri góðu gamni ásamt þeim Ívari Ingimarssyni og Brynjari Birni Gunnarssyni. Allir þurftu þeir að yfirgefa landið fyrir skemmstu til að sinna skyldum sínum sem atvinnumenn í boltanum. Ekki dugði minna en helstu tónlistarmenn þjóðarinnar til þess að spila fyrir gesti. Stefán Hilmarsson, Jón Ólafsson og Björn Jörundur sáu um það við góðar undirtektir auk þess sem Hara-systur voru fengnar til þess að líta inn og syngja nokkur lög. Boðið var upp á bæði nauta- og lambakjöt af grillinu, fínasta meðlæti, rauðvín og hvítvín. Gestir þurftu ekki að ómaka sig við að hella í glösin og bæta á diskana því í veislunni voru þjónar á hverju strái. Hófið þótti afskaplega vel lukkað og skemmtu gestir sér fram á nótt. Ekki fylgir sögunni hvort veislan hafi verið afmælisgjöf Eiðs til konunnar en það má reikna með að hún fái að minnsta kosti eitthvert smáræði á sjálfan afmælisdaginn á morgun.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira