Kate Middleton er framtíðardrottning Bretlands 7. júlí 2007 09:45 Vilhjálmur og Kate Middleton hafa tekið saman á ný eftir stutt hlé. NordicPhotos/GettyImages
Bretar geta tekið gleði sína á ný því að framtíðarkonungsefni landsins er aftur komið á fast. Ekki er þó ný drottning komin í höllina því Vilhjálmur og Kate Middleton hafa tekið saman á ný. Breska blaðið The Sun tilkynnti um endurfundi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton á forsíðu sinni í gær. Samband Kate og Vilhjálms lauk í vor þegar kóngurinn taldi sig þurfa að sletta aðeins úr klaufunum og njóta lífsins í hernum. Kate vildi hins vegar fá hring á fingur og stórt brúðkaup sem samræmdist vonum og væntingum bresku þjóðarinnar um nýtt „Díönu-og-Karls brúðkaup.“ Konungsefnið fór hins vegar fljótlega að sakna Kate og var hún meðal annars á góðgerðartónleikunum á Wembley sem haldnir voru til minningar um Díönu prinsessu. Þar héldu þau þó hæfilegri fjarlægð hvort frá öðru. Slúðurblöðin bresku voru hins vegar ekki lengi að birta vangaveltur um að eldurinn í hjörtum þeirra hefði kviknað að nýju og greindi News of the World meðal annars frá því í sunnudagsblaði sínu eftir tónleikana að þau hefðu átt næturgaman eftir tónleikana. Og nú virðast þau vera komin úr felum með sambandið eftir að Vilhjálmur sannfærði Kate um að það væri þess virði að vera í sambandi við næsta kóng Bretlands. „Þau eru nánari en nokkru sinni fyrr,“ hefur The Sun eftir heimildarmanni sínum. „Þau tóku eitt skref aftur, veltu hlutunum aðeins fyrir sér og áttuðu sig á hvaða tilfinningar þau bera hvort til annars,“ bætir nafnlausi heimildarmaðurinn við. Og ekki eru Bretar lengi að taka við sér, eru nú þegar byrjaðir að velta því fyrir sér hvenær kirkjuklukkurnar verði látnar hringja og boðað verði til brúðkaups í Buckingham. Líklegt er hins vegar talið að ef sambandið gengur snurðulaust fyrir sig verði slíkt ekki að veruleika fyrr en árið 2009 þegar Vilhjálmur hefur lokið herþjónustu sinni.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira