Getur verið sóun á almannafé að styrkja veikustu svæðin 17. mars 2007 19:45
Veikustu byggðasvæðin á landinu ætti síður að styrkja en hin sterkari, segir sérfræðingur. Forgangsröðun er mikilvæg, og það getur verið sóun á almannafé að styrkja veikustu svæði landsins. Við höfum sagt frá byggðavanda Vestfirðinga hvernig framleiðsla hefur dregist þar saman og íbúum stórfækkað. Á Norðurlandi vestra er ástandið víða svipað. Hagvöxtur jafnvel neikvæður, framleiðsla dregist saman, meðalaldur íbúa er hár og fólksfækkun. Lítum á stöðuna í einum af helsta þéttbýliskjarna Norðurlands vestra, Hvammstanga, sem dags daglega er ekki í fréttum. Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, segir að sumt sé þar jákvætt, fasteignaverð sé býsna hátt og spurn eftir húsnæði mikil. En íbúum hefur fækkað um 120 manns á Hvammstanga. Þeir eru nú um 580 talsins en voru um 700 ekki alls fyrir löngu. Fyrirtæki hafa helst úr leik í atvinnulífinu. Mjólkursamlagið er stopp. Prjónastofa sem veitti fjölda kvenna atvinnu er úr sögunni, Kaupfélagið hefur minnkað umsvif sín og rækjuvinnsla mjög átt undir högg aðsækja. Á hinn bóginn eru nýsköpunarsprotar fyrir hendi og þá hafa stjórnvöld beitt sértækri byggðaaðgerð eins og nú er víða kallað eftir með því að flytja Fæðingarorlofssjóð til Hvammstanga og urðu þar til nokkur ný stöðugildi. Hagfræðiprófessorinn Jón Þorvaldur Heiðarsson sem skoðað hefur byggðamál gjörla varar við því að sértækar byggðaaðgerðir eigi sér stað á þeim svæðum sem veikust séu. Fremur eigi að styrkja þau svæði sem sannarlega séu lífvænleg. Sveitarstjóri Húnaþings vestra tekur undir þetta og bendir einnig á þótt lítill pólitískur vilji hafi verið síðari ár fyrir sértækum byggðaaðgerðum séu mörg dæmi um svoleiðis stuðning þekkt alls staðar í nágrannalöndunum.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Innlent Fyrstu tölur í Reykjavík: Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks mögulegur Innlent „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Innlent Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Innlent Lokatölur á Akranesi: Meirihlutinn missti mann en heldur Innlent Einar vill Viðreisn frekar en Miðflokkinn Innlent Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Innlent Fleiri fréttir Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Lokatölur í Eyjafjarðarsveit: F-listinn stækkar meirihlutann Lokatölur úr Hörgársveit: Gróska fékk flest atkvæði Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Raddir okkar allra unnu stórsigur Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Lokatölur í Bláskógabyggð: Það sama upp úr kössunum og síðast Ingibjörg Þóranna hlaut flest atkvæði í Dalabyggð Einar vill Viðreisn frekar en Miðflokkinn Framtíðarlistinn með meirihluta í Súðavíkurhreppi Ábyrgð náði hreinum meirihluta Lokatölur úr Hrunamannahreppi: Meirihluti D-listans heldur velli Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Hildur segir nýjan meirihluta þurfa breiða skírskotun Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð Lokatölur í Skagafirði: Byggðalistinn vinnur stórt en meirihlutinn heldur Pétur hræddur um framtíð Borgarlínunnar Lokatölur í Grundarfjarðarbæ: Framsóknarmenn með meirihluta Lokatölur á Akranesi: Meirihlutinn missti mann en heldur Lokatölur í Ísafjarðarbæ: Framsókn þrefaldar fylgi sitt Unnu stórsigur í Grímsnes- og Grafningshreppi Fyrstu tölur í Reykjavík: Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks mögulegur Lokatölur á Seltjarnarnesi: Sjálfstæðismenn halda velli Sjá meira