Innlent

Árás doberman- hunda hörmuð

Doberman-
hundur
Doberman- hundur

dýrahald Bergþóra Bachmann, tengiliður fyrir doberman-hunda hjá Hundaræktarfélaginu, harmar atburðinn þegar doberman-hundum var sigað á lögreglu um síðustu helgi. Henni finnst leitt að doberman-hundar séu hjá fólki sem hafi ekkert með svona hunda að gera.

„Varðeðli er í þeim og ef ógn er í aðsigi þá láta þeir vita. Það er aftur á móti ekki í eðli þeirra að ráðast á fólk,“ segir Bergþóra. Hins vegar vilji þeir allt fyrir eigendur sína gera. Bergþóra vill að fólk athugi hverjum það selur hvolpa og ef það ætli að kaupa hverjir hafi alið þá upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×