Lífið

Dóra er aðstoðarkona fjallkonunnar

Gullsmiðurinn Dóra Jónsdóttir hefur aðstoðað fjallkonuna í rúman áratug.
Gullsmiðurinn Dóra Jónsdóttir hefur aðstoðað fjallkonuna í rúman áratug. fréttablaðið/valli

Gullsmiðurinn Dóra Jónsdóttir hefur undanfarin ár séð um að klæða íslensku fjallkonuna í þjóðbúninginn fyrir ræðu hennar á Austurvelli á 17. júní.



Að sögn Dóru taka klæðaskiptin um hálftíma. „Það geta flestir komist í búninginn hjálparlaust en það setur enginn upp höfuðbúnaðinn nema að hafa aðstoð til þess því það er erfitt að gera það. Það þarf að festa hann á höfuðið og aftur fyrir og það er óheppilegt ef menn ætla að gera það sjálfir,“ segir Dóra. „Þessar stúlkur sem hafa verið fjallkonur þekkja oftast ekki þjóðbúningana og vita ekki hvað þeir heita.“



Þjóðbúningurinn nefnist skautbúningur og dregur nafn sitt af faldinum sem heitir skautfaldur. Er hann geymdur í Árbæjarsafni og er í eigu Reykjavíkurborgar.



Eftir að fjallkonan hefur lokið ræðu sinni tekur Dóra aftur til starfa. „Það þarf að hjálpa henni að komast úr búningnum aftur. Hún fer í Alþingisgarðinn þar sem teknar eru myndir af henni ásamt þjóðhátíðarnefnd. Síðan hjálpa ég henni við að fara úr búningnum og set síðan búninginn upp í Árbæjarsafn. Þar er valin fjallkona safnsins og fólk getur fengið að fylgjast með því hvernig þetta er gert,“ segir hún.



Benóný Ægisson, verkefnisstjóri 17. júní, vill ekkert gefa upp um hver fjallkonan verður enda hefur það verið eitt best geymda leyndarmál borgarinnar í gegnum árin. Sjálfur hefur Benóný verið í hlutverki „fjallkarlsins“ undanfarnar vikur. „Þetta er mjög virðulegt embætti. Ég held að þetta sé þriðja skiptið mitt og mitt hlutverk er að velja fjallkonuna og ljóðið sem hún flytur og styðja á alla lund,“ segir Benóný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.