Dóra er aðstoðarkona fjallkonunnar 17. júní 2007 00:30 Gullsmiðurinn Dóra Jónsdóttir hefur aðstoðað fjallkonuna í rúman áratug. fréttablaðið/valli
Gullsmiðurinn Dóra Jónsdóttir hefur undanfarin ár séð um að klæða íslensku fjallkonuna í þjóðbúninginn fyrir ræðu hennar á Austurvelli á 17. júní. Að sögn Dóru taka klæðaskiptin um hálftíma. „Það geta flestir komist í búninginn hjálparlaust en það setur enginn upp höfuðbúnaðinn nema að hafa aðstoð til þess því það er erfitt að gera það. Það þarf að festa hann á höfuðið og aftur fyrir og það er óheppilegt ef menn ætla að gera það sjálfir,“ segir Dóra. „Þessar stúlkur sem hafa verið fjallkonur þekkja oftast ekki þjóðbúningana og vita ekki hvað þeir heita.“ Þjóðbúningurinn nefnist skautbúningur og dregur nafn sitt af faldinum sem heitir skautfaldur. Er hann geymdur í Árbæjarsafni og er í eigu Reykjavíkurborgar. Eftir að fjallkonan hefur lokið ræðu sinni tekur Dóra aftur til starfa. „Það þarf að hjálpa henni að komast úr búningnum aftur. Hún fer í Alþingisgarðinn þar sem teknar eru myndir af henni ásamt þjóðhátíðarnefnd. Síðan hjálpa ég henni við að fara úr búningnum og set síðan búninginn upp í Árbæjarsafn. Þar er valin fjallkona safnsins og fólk getur fengið að fylgjast með því hvernig þetta er gert,“ segir hún. Benóný Ægisson, verkefnisstjóri 17. júní, vill ekkert gefa upp um hver fjallkonan verður enda hefur það verið eitt best geymda leyndarmál borgarinnar í gegnum árin. Sjálfur hefur Benóný verið í hlutverki „fjallkarlsins“ undanfarnar vikur. „Þetta er mjög virðulegt embætti. Ég held að þetta sé þriðja skiptið mitt og mitt hlutverk er að velja fjallkonuna og ljóðið sem hún flytur og styðja á alla lund,“ segir Benóný.
Mest lesið Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Lífið Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Lífið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Lífið Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Lífið Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Bíó og sjónvarp „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Lífið Fleiri fréttir Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Annie Mist á von á þriðja barninu Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Sjá meira