Eyjamenn ósáttir við hækkun á fargjöldum Herjólfs 1. febrúar 2007 13:00
Um fimm hundruð manns mótmæltu hækkunum á far- og farmgjöldum Herjólfs á Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum. Gjöldin hækka að meðaltali um ellefu og hálft prósent. Fólkið safnaðist saman skömmu áður en Herjólfur fór sína seinni ferð frá Vestmannaeyjum í gær. Meðan verið var að aka bílum og vögnum um borð lét hópurinn í sér heyra. Hækkunin tók gildi í dag. Eggert Björgvinsson, forsvarsmaður mótmælanna, segir Eyjamenn ósátta við gjaldskrána sem sé ósanngjörn. Hann nefnir sem dæmi að eftir hækkun kosti tvö þúsund krónur fyrir bíl sem er fimm metrar að lengd með Herjólfi. Fyrir bíl sem aðeins er sentímeter lengri eða fimm metrar og einn sentímetri kosti hins vegar fjögur þúsund krónur eða helmingi meira. Eimskip sér um rekstur Herjólfs samkvæmt samning við ríkið og endurspeglar gjaldskrá Herjólfs kostnað við rekstur skipsins. Hækkandi olíuverð hefur áhrif svo og hækkandi byggingarvístala og launavísitala. Eggert segir mótmælin einkum beinast að ráðherra samgöngumála og þingmönnum kjördæmisins. Ekki sé eðlilegt að samgönguráðherra gerir samning sem feli það í sér að hægt sé að hækka gjaldskrá án þess að það komi ríkinu. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir það skýrt hvað íbúar í bænum vilji en það er allsherjar endurskoðun á gjaldskrá og að Vestmannaeyingar borgi það sama fyrir notkun á þjóðvegi sínum og aðrir landsmenn.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira