Innlent

Tvö vinnuslys á innan við viku

Trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkum segir að of mörg vinnuslys megi rekja til áhættuhegðunar.
Trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkum segir að of mörg vinnuslys megi rekja til áhættuhegðunar. MYND/Vilhelm

Kínverskur verkstjóri mjaðmagrindarbrotnaði í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar aðfaranótt sunnudags. Þetta er í annað skipti á einni viku sem vinnuslys verður í göngunum því verkamaður lærbrotnaði þar í síðustu viku. Starfsmenn vinnueftirlitsins skoðuðu aðstæður á svæðinu í gær.

Maðurinn sem slasaðist aðfaranótt sunnudags klemmdist milli lestar og færibands í aðgöngum 2 og var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Sá sem lærbrotnaði í síðustu viku hljóp í veg fyrir steypudæluvagn.

„Ég lít þetta mjög alvarlegum augum. Of mörg slys verða við steypusprautun og það bendir til þess að ekki sé farið nógu varlega.

Stundum virðist vera um hreina áhættuhegðun að ræða,“ segir Oddur Friðriksson, trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkum.

Þorvaldur P. Hjarðar, aðstoðarumdæmisstjóri vinnueftirlitsins á Austurlandi, skoðaði aðstæður á slysstað í gær. Hann tekur undir með Oddi og segir að áhættuhegðun sé of mikil.

„Þetta eru vanir menn og það er erfitt að átta sig á því hvers vegna verkstjórinn færir sig ekki þegar lestin kemur. Við fyrstu sýn dettur manni kæruleysi í hug og sá sem ók lestinni hlýtur að bera einhverja ábyrgð,“ segir Þorvaldur.

Tildrög slyssins eru ekki að fullu ljós enda hefur ekki gefist tóm til að ræða við manninn sem slasaðist. Lögreglan á Egilsstöðum fer með rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×