Tvö vinnuslys á innan við viku 19. júní 2007 04:15 Trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkum segir að of mörg vinnuslys megi rekja til áhættuhegðunar. MYND/Vilhelm
Kínverskur verkstjóri mjaðmagrindarbrotnaði í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar aðfaranótt sunnudags. Þetta er í annað skipti á einni viku sem vinnuslys verður í göngunum því verkamaður lærbrotnaði þar í síðustu viku. Starfsmenn vinnueftirlitsins skoðuðu aðstæður á svæðinu í gær. Maðurinn sem slasaðist aðfaranótt sunnudags klemmdist milli lestar og færibands í aðgöngum 2 og var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Sá sem lærbrotnaði í síðustu viku hljóp í veg fyrir steypudæluvagn. „Ég lít þetta mjög alvarlegum augum. Of mörg slys verða við steypusprautun og það bendir til þess að ekki sé farið nógu varlega. Stundum virðist vera um hreina áhættuhegðun að ræða,“ segir Oddur Friðriksson, trúnaðarmaður starfsmanna á Kárahnjúkum. Þorvaldur P. Hjarðar, aðstoðarumdæmisstjóri vinnueftirlitsins á Austurlandi, skoðaði aðstæður á slysstað í gær. Hann tekur undir með Oddi og segir að áhættuhegðun sé of mikil. „Þetta eru vanir menn og það er erfitt að átta sig á því hvers vegna verkstjórinn færir sig ekki þegar lestin kemur. Við fyrstu sýn dettur manni kæruleysi í hug og sá sem ók lestinni hlýtur að bera einhverja ábyrgð,“ segir Þorvaldur. Tildrög slyssins eru ekki að fullu ljós enda hefur ekki gefist tóm til að ræða við manninn sem slasaðist. Lögreglan á Egilsstöðum fer með rannsókn málsins.
Mest lesið Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Erlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Sjá meira