Hafnar því að þýðingarþjónusta sé niðurgreidd 25. september 2007 12:25 Einar Skúlason segir að Alþjóðahúsið verið að vera með alla anga úti til að láta enda ná saman. MYND/GVA
Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, hafnar því alfarið að það niðurgreiði túlka- og þýðingarþjónustu með styrkjum frá ríki og borg eins og forsvarsmenn Þýðingarstofunnar Skjals halda fram.Eins og fram kom í fréttum í morgun hefur Skjal sent inn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna þátttöku Alþjóðahúss í útboði Ríkiskaupa vegna túlka- og þýðingarþjónustu fyrir opinber fyrirtæki og stofnanir. Segja forsvarsmenn Skjals að ástæða sé til að ætla að Alþjóðahús niðurgreiði þessa þjónustu með styrkjum sem það fái frá ríki og sveitarfélögum, það er með almannafé, og það bitni á þýðendum á markaði.Þýðingarþjónusta alltaf skilað hagnaðiEinar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, segir í samtali við Vísi að styrkir frá ríki og sveitarfélögum annars vegar og tekjur af margs konar þjónustu séu skýrt aðskildir í bókhaldi Alþjóðahúss. Alþjóðahús hafi enga hagsmuni af því að niðurgreiða þýðingar- og túlkaþjónustu og sú þjónusta hafi alltaf skilað hagnaði.„Við fáum 25 prósent af tekjum okkar með opinberum styrkjum frá sveitarfélögum og ríkinu en 75 prósent koma í gegnum þjónustu sem við veitum," segir Einar. Einar bendir enn fremur á að samkvæmt þjónustusamningi sem Alþjóðahús hafi gert við fjögur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu beri húsinu að veita túlkaþjónustu.„Við teljum mikilvægt að vera í túlkaþjónustu. Þetta er snerting sem Alþjóðahúsið hefur við samfélag útlendinga," segir Einar enn fremur en um 200 manns vinna á vegum Alþjóðahúss við þýðingar og túlkanir. Alþjóðahúsið veitir túlkun á 60 tungumálum og þýðingar á 35 málum.Einar ítrekar að þjónustan sé til þess að skila Alþjóðahúsi tekjum og bendir á að opinberir styrkir til hússins hafi minnkað á milli áranna 2006 og 2007. Þannig hafi Reykjavíkurborg til að mynda lækkað framlag sitt til Alþjóðahúss um 10 milljónir. „Þetta herðir á okkur að afla tekna og við verðum að hafa alla anga úti," segir Einar.Þá bendir Einar á Alþjóðahús sé ekki einkahlutafélag í eigu Reykjavíkurdeildar Rauða krossins heldur félag í eigu sjálfseignarstofnunarinnar Kosmos.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira