Innlent

Hafnar því að þýðingarþjónusta sé niðurgreidd

Einar Skúlason segir að Alþjóðahúsið verið að vera með alla anga úti til að láta enda ná saman.
Einar Skúlason segir að Alþjóðahúsið verið að vera með alla anga úti til að láta enda ná saman. MYND/GVA
Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, hafnar því alfarið að það niðurgreiði túlka- og þýðingarþjónustu með styrkjum frá ríki og borg eins og forsvarsmenn Þýðingarstofunnar Skjals halda fram.

Eins og fram kom í fréttum í morgun hefur Skjal sent inn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna þátttöku Alþjóðahúss í útboði Ríkiskaupa vegna túlka- og þýðingarþjónustu fyrir opinber fyrirtæki og stofnanir. Segja forsvarsmenn Skjals að ástæða sé til að ætla að Alþjóðahús niðurgreiði þessa þjónustu með styrkjum sem það fái frá ríki og sveitarfélögum, það er með almannafé, og það bitni á þýðendum á markaði.

Þýðingarþjónusta alltaf skilað hagnaði

Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, segir í samtali við Vísi að styrkir frá ríki og sveitarfélögum annars vegar og tekjur af margs konar þjónustu séu skýrt aðskildir í bókhaldi Alþjóðahúss. Alþjóðahús hafi enga hagsmuni af því að niðurgreiða þýðingar- og túlkaþjónustu og sú þjónusta hafi alltaf skilað hagnaði.

„Við fáum 25 prósent af tekjum okkar með opinberum styrkjum frá sveitarfélögum og ríkinu en 75 prósent koma í gegnum þjónustu sem við veitum," segir Einar. Einar bendir enn fremur á að samkvæmt þjónustusamningi sem Alþjóðahús hafi gert við fjögur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu beri húsinu að veita túlkaþjónustu.

„Við teljum mikilvægt að vera í túlkaþjónustu. Þetta er snerting sem Alþjóðahúsið hefur við samfélag útlendinga," segir Einar enn fremur en um 200 manns vinna á vegum Alþjóðahúss við þýðingar og túlkanir. Alþjóðahúsið veitir túlkun á 60 tungumálum og þýðingar á 35 málum.

Einar ítrekar að þjónustan sé til þess að skila Alþjóðahúsi tekjum og bendir á að opinberir styrkir til hússins hafi minnkað á milli áranna 2006 og 2007. Þannig hafi Reykjavíkurborg til að mynda lækkað framlag sitt til Alþjóðahúss um 10 milljónir. „Þetta herðir á okkur að afla tekna og við verðum að hafa alla anga úti," segir Einar.

Þá bendir Einar á Alþjóðahús sé ekki einkahlutafélag í eigu Reykjavíkurdeildar Rauða krossins heldur félag í eigu sjálfseignarstofnunarinnar Kosmos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×