Samábyrgð er lokið 10. desember 2007 17:52 Frá Samhæfingamiðstöð almannavarna. Mynd/ Stöð 2
Æfingunni Samábyrgð 2007, sem staðið hefur yfir um allt land í dag, lauk klukkan fimm. Að æfingu lokinni héldu aðgerðarstjórnir fundi til að meta árangur og draga lærdóma af henni. Æfingunni var stjórnað af ríkislögreglustjóra og sóttvarnarlækni. Settur var á svið hugsanlegur ferill heimsfaraldurs inflúensu og voru fréttainnskot Ríkisútvarpsins spiluð á klukkutíma fresti þar sem stigmagnandi áhrifum inflúensunnar var lýst. Í samræmi við alvarleika ástands hverju sinni leystu þátttakendur úr verkefnum á óvissustigi, hættustigi og neyðarstigi almannavarna eins og um raunverulegan atburð væri að ræða. Verkefni sem lögreglustjórar og sóttvarnalæknar umdæma og svæða þurftu að leysa af hendi voru margs konar. Skipulagðar voru takmarkanir á ferðafrelsi fólks til landsins og innanlands til að hefta útbreiðslu flensunnar. Einnig var æft að framfylgja samkomubanni og skipuleggja flutning og dreifingarstaði nauðsynja og lyfja. Þá skipulögðu aðgerðarstjórnir heimahjúkrun og skimun farþega á landamærastöðvum til að leita að einkennum inflúensu. Æfingin þykir hafa tekist vel og margvíslegur lærdómur áunnist sem sóttvarnarlæknir og ríkislögreglustjóri munu nýta við frekari skipulagsvinnu vegna undirbúnings viðbragða við heimsfaraldri inflúensu.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Sjá meira