Annríki hjá hjálparsveitum vegna ofsaveðurs 10. desember 2007 23:47 Björgunarsveitamenn eiga annríkt þessa stundina. Myndin tengist fréttinni ekki.
Björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Hafnarfirði hefur borist að minnsta kosti 25 hjálparbeiðnir í kvöld. Nú vinna um 50 björgunarsveitarmenn að því að leysa þau. Verst hefur ástandið verið við norðurbakka hafnarinnar þar sem nokkrar nýbyggingar eru. Einnig hafa þakplötur losnað af húsum, bílar fokið, gluggar brotnað og girðingar, vinnupallar og fánastangir farið af stað. Á einum stað fauk grill inn um glugga og á öðrum splundraðist hjólhýsi. Víðar veldur veðrið miklum usla. Við Nýjabæ í Garðaholti eru fjárhús, hlaða og vélageymsla að fjúka. Við Löngufit í Garðabæ sprakk vinnuskúr. Einnig hafa borist hjálparbeiðnir frá Kópavogi og Reykjavík, og þá helst úr efri hverfum. Í Reykjanesbæ vinna um 30 björgunarsveitarmenn að því að hefta fok í bænum og sinna hjálparbeiðnum. Þar hafa fokið girðingar, m.a. við verslunina Byko og bátar eru að losna í höfninni. Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út um kl 21 í kvöld vegna foks í bænum. Einnig var athugað með ástand í höfninni. Í Borgarnesi vinnur Björgunarsveitin Brák að því að leysa einar 10 hjálparbeiðnir er borist hafa. M.a. þarf að hefta töluvert fok frá nýbyggingum við Brákarbraut. Í Vestmannaeyjum er verið að kalla út björgunarsveit. Upplýsingar frá Veðurstofu gefa til kynna að veðrið muni ganga yfir höfuðborgarsvæðið um klukkan eitt í nótt. Vindur nær allt að 60 m/sek undir Hafnarfjalli þessa stundina og er vegurinn þar lokaður.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira