Sögðu ríkisstjórnina svelta heilbrigðiskerfið til einkavæðingar 10. desember 2007 15:03
Þingmenn Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins gagnrýndu ríkisstjórnina fyrir að svelta heilbrigðiskerfið með það fyrir augum að greiða fyrir einkavæðingu í kerfinu. Stjórnarliðar sögðu hins vegar að verið væri að vinna upp gamlar syndir framsóknarráðherra. Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar og sagði að það þyrfti að stórskerða þjónustu í heilsugæslunni og á Landspítalanum miðað við hugmyndir ríkisstjórnarflokkanna um framlög til þessara liða á næstu ári. Vísaði hún til sparnaðartillagna hjá heilsugæslunni sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu. Þá sagði hún Ástu Möller, þingkonu Sjálfstæðisflokksins, hafa skammað stjórnendur heilsugæslunnar fyrir að benda á sparnaðarleiðir en orð hennar staðfestu þann grun að það ætti að gera grundvallarbreytingar á heilbrigðiskerfinu eins og forsætisráðherra hefði talað um. Svelta ætti heilbrigðiskerfið fyrir einkavæðingu. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðsráðherra vakti athygli á því að Siv Friðleifsdóttir hefði stigið upp úr stól heilbrigðisráðherra fyrir sex mánuðum en talaði nú um grundvallarbreytingu á heilbrigðiskerfinu. Hann sagði fáránlegt að tala um 550 milljóna króna sparnað hjá heilsugæslunni sem ekki yrði ráðist í. Þá væri það fáránlegt að tala um að hér ætti að taka upp amerískt kerfi með því að nýta kosti einkarekstursins. Það væri nú þegar einkarekstur í kerfinu, heilsugæslan í Salahverfi, Art Medica og Orkuhúsið væru dæmi um það. Ráðist hefði verið í þær breytingar í tíð framsóknarmanna í heilbrigðisráðuneytinu. Það hefði ekkert breyst. Ögmundur Jónasson tók undir með Guðlaugi Þór að ekkert hefði breyst. Á síðustu árum hefðu framlög til Landspítalans verið skorin niður að raungildi og nú sé svo komið að stjórnendur spítalans geti ekki hagrætt meira. Það þyrfti hið minnsta 800-1000 milljónir til að halda óbreyttri starfsemi spítalans á næsta ári. Ögmundur sagði Ísland standa á pólitískum tímamótum. Niðurskurður í heilbrigðismálum væri af pólitískum rótum til þess að greiða götur einkareksturs. Ætlunin væri að koma á fót verslunarmiðstöð fyrir sjúkdóma með nýju frumvarpi heilbrigðisráðherra og lofaði hann löngum og ítarlegum umræðum um það. Ásta Möller, þingkona Sjálfstæðisflokksins, sagði þær hugmyndir að skera niður skóla- og heimahjúkrun gengju gegn stefnu stjórnvalda sem hygðust þrefalda framlög til heimahjúkrunar á næstu þremur árum. Full þörf væri hins vegar á að endurskoða rekstur heilsugæslunnar því hún væri of miðstýrð. Sagði Ásta það koma á óvart að Siv Friðleifsdóttir liti svo á að heilsugæslan í Salahverfi væri ávísun á amerískt kerfi. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði vandann í málinu snúast um uppsafnaðan halla Landspítalans og heilsugæslunnar frá fyrri árum í tíð Framsóknarflokksins. Ríkisstjórnin nú ætlaði að verja 500 milljónum króna aukalega til heilsugæslunnar, þrefalda fjármagn til heimahjúkrunar á þremur árum og efla geðheilbrigðisþjónsutu barna og unglinga.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira