Lífið

Eggert lemur útlending

Orðaskakið byrjar. Eggert Þorleifsson er ekki par sáttur við útlendinginn og lætur hann heyra það.
Orðaskakið byrjar. Eggert Þorleifsson er ekki par sáttur við útlendinginn og lætur hann heyra það.

Leikarinn Eggert Þorleifsson hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir slagsmál og læti. Í vikunni sást þó til hans við einmitt þess háttar athöfn.

Vegfarendum úti á Granda hefur eflaust mörgum hverjum brugðið í brún í vikunni þegar þeir sáu rólyndismanninn Eggert Þorleifsson eiga í ryskingum við útlending á Olís-bensínstöðinni. Eggert virtist hlaupa kapp í kinn og áður en leið á löngu kom til einhverra ryskinga.

Þetta var þó allt leikur því nú standa yfir tökur á kvikmyndinni Stóra planið sem byggð er á bók Þorvalds Þorsteinssonar, Við fótskör meistarans.

Tökuliðið var statt við umrædda bensínstöð og þegar Fréttablaðið náði tali af leikstjóranum Ólafi Jóhannessyni reyndist allt brjálað að gera við að undirbúa skotið þar sem Eggert, í hlutverki grunnskólakennarans Haralds Haraldssonar, lendir í einhverjum ryskingum við útlending sem þar kemur að. „Við erum á áætlun," sagði leikstjórinn Ólafur sem augljóslega hafði ekki mikinn tíma til að ræða málin, önnum kafinn við að undirbúa atriðið. Gríðarlegum fjölda íslenskra leikara bregður fyrir í myndinni og er sjaldséður jafn stjörnum prýddur leikhópur.

 

Slær í brýnu. Áður en nokkur fær við rönd reist upphefjast einhverjir pústrar. Að gefnu tilefni skal þó tekið fram að þetta eru senur úr kvikmyndinni Stóra planið. MYND/Hörður

Í hópnum eru meðal annarra Þorsteinn Guðmundsson, Jón Gnarr, fyrrverandi alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttur, Ingvar E. Sigurðsson og Ilmur Stefánsdóttir svo einhverjir séu nefndir.

Eins og kom fram í Fréttablaðinu leikur bandaríski leikarinn Michael Imperioli stórt hlutverk í myndinni en hann er þó ekki kominn til landsins. „Við búumst við honum í þarnæstu viku," segir Ólafur og var þar með rokinn til móts við tökuliðið sem beið eftir honum og næstu skipun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.