Eggert lemur útlending 29. apríl 2007 11:00 Orðaskakið byrjar. Eggert Þorleifsson er ekki par sáttur við útlendinginn og lætur hann heyra það.
Leikarinn Eggert Þorleifsson hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir slagsmál og læti. Í vikunni sást þó til hans við einmitt þess háttar athöfn. Vegfarendum úti á Granda hefur eflaust mörgum hverjum brugðið í brún í vikunni þegar þeir sáu rólyndismanninn Eggert Þorleifsson eiga í ryskingum við útlending á Olís-bensínstöðinni. Eggert virtist hlaupa kapp í kinn og áður en leið á löngu kom til einhverra ryskinga. Þetta var þó allt leikur því nú standa yfir tökur á kvikmyndinni Stóra planið sem byggð er á bók Þorvalds Þorsteinssonar, Við fótskör meistarans. Tökuliðið var statt við umrædda bensínstöð og þegar Fréttablaðið náði tali af leikstjóranum Ólafi Jóhannessyni reyndist allt brjálað að gera við að undirbúa skotið þar sem Eggert, í hlutverki grunnskólakennarans Haralds Haraldssonar, lendir í einhverjum ryskingum við útlending sem þar kemur að. „Við erum á áætlun," sagði leikstjórinn Ólafur sem augljóslega hafði ekki mikinn tíma til að ræða málin, önnum kafinn við að undirbúa atriðið. Gríðarlegum fjölda íslenskra leikara bregður fyrir í myndinni og er sjaldséður jafn stjörnum prýddur leikhópur. Slær í brýnu. Áður en nokkur fær við rönd reist upphefjast einhverjir pústrar. Að gefnu tilefni skal þó tekið fram að þetta eru senur úr kvikmyndinni Stóra planið. MYND/Hörður Í hópnum eru meðal annarra Þorsteinn Guðmundsson, Jón Gnarr, fyrrverandi alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttur, Ingvar E. Sigurðsson og Ilmur Stefánsdóttir svo einhverjir séu nefndir. Eins og kom fram í Fréttablaðinu leikur bandaríski leikarinn Michael Imperioli stórt hlutverk í myndinni en hann er þó ekki kominn til landsins. „Við búumst við honum í þarnæstu viku," segir Ólafur og var þar með rokinn til móts við tökuliðið sem beið eftir honum og næstu skipun.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Hera Björk mun kynna stigin Lífið Fleiri fréttir Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Sjá meira