Tvö hundruð þúsund tonn af forskautum 25. apríl 2007 18:30
Tæplega tvöhundruð þúsund tonn af forskautum falla til á hverju ári í álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði. Endingartími hvers forskauts er tuttugu og átta dagar. Það eru 336 ker í álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði, stærsta álveri landsins en það mun taka marga mánuði að koma þeim öllum í notkun. Ál er framleitt með rafgreiningu, en þá er sterkum straum hleypt á kríólít og flúorríka lausn, sem verður til þess að skilja álið úr hráefninu sem er súrál. Fyrst um sinn verður aðeins brætt í 40 kerjum en áður en árið er á enda, verða öll 336 kerin komin í vinnslu. Í hverju keri eru 40 forskaut sem hanga ofan í kerið. Það gerir 13.440 skaut í verksmiðjunni allri og það þarf að skipta um þau á 28 daga fresti. Á sama tíma og vinnsla fer fram í Fjarðaáli vinna menn að því að ljúka byggingu kerskálanna og að því að gera kerin fullklár. Auk 40 forskauta eru 20 svo kölluð botnskaut í hverju keri, en þau endast mun lengur en forskautin eða líftíma keranna sem er 5-7 ár. Forskautin er úr kolefni og þegar rafstraumurinn fer um þau leysist súrálið upp við 960 gráðu hita og klofnar í ál og súrefni. Súrefnið brennur með forskautunum og við það verður til koltvísýringur, en álið fellur til botns í kerjunum. Álið er flutt úr kerskálanum í þar til gerðum deiglum sem taka yfir tíu tonn af áli, sem er þá yfir 900 gráðu heitt. Úr kerskálanum er það flutt yfir í steypuskálann, þar sem afurðirnar verða til. Þetta þýðir að sérstakir flutningsbílar þurfa að fara 90 ferðir á sólarhring með sjóðheitt ál frá kerskálunum yfir í steypuskálann, sem ekki er sambyggður kerskálunum. Um 1,3 milljónir tonna fara um Mjóeyrarhöfn á hverju ári á vegum álversins. Þar er bæði um að ræða hráefni til verksmiðjunnar og afurðirnar sem fluttar verða frá henni. Til stóð á tímabili að setja upp forskautaverksmiðju hér á landi en það var horfið frá því. En á hverju ári falla til um 180 þúsund tonn af notuðum forskautum í Fjarðaáli. Þau eru flutt í verksmiðju Alcoa í Noregi, þar sem þau eru endurunnin.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Sjá meira