Tólf ára skeiði stóriðjuframkvæmda lokið 13. desember 2007 18:30
Smíði álvers Alcoa á Reyðarfirði lauk í dag. Þar með er lokið tólf ára skeiði samfelldra stóriðjuframkvæmda í landinu.Alcoa Fjarðaál kvaddi nú síðdegis verktakafyrirtækið Bechtel sem byggði álverið á Reyðarfirði. Þar með lauk þeim framkvæmdum formlega. Þá var því lýst yfir á Grundartanga fyrir tveimur vikum að stækkun álvers Norðuráls væri lokið. Með lokum þessara tveggja risaverkefna er komin upp sú staða að hvergi á landinu er verið að byggja álver eða annað stóriðjuver eftir nær samfellt tólf ára tímabil slíkra framkvæmda. Framkvæmdaskeiðið hófst árið 1995, þegar samið var um stækkun álversins í Straumsvík með byggingu þriðja kerskálans. Stækkun Straumsvíkur lauk árið 1997. Smíði Norðuráls á Grundartanga hófst sama ár og hefur smíði þess álvers staðið yfir meira og minna síðan í þremur áföngum með litlum hléum á milli. Lengsta hléið þar var brúað með stækkun Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga á árunum 1998 til 1999. Framkvæmdirnar á Reyðarfirði hófust svo árið 2005. Öllum þessum stóriðjuframkvæmdum hafa fylgt umfangsmiklar virkjanaframkvæmdir og standa þær raunar enn yfir. Þannig vinna hátt í 400 manns í vetur við síðasta áfanga Kárahnjúkavirkjunar. Þetta er þó aðeins tíundi hluti þess mannfjölda sem vann við framkvæmdirnar á Austurlandi þegar mest var sumarið 2006 en þá unnu þar um fjögur þúsund manns. Ekki er þó víst að hlé á álversframkvæmdum standi lengi. Norðurál undirbýr smíði álvers í Helguvík og miðar við að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Þá undirbýr Alcoa smíði álvers við Húsavík og stefnir að því hefjast handa árið 2010.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira