Glímdu við um 60 verkefni á Akranesi í nótt 13. desember 2007 11:48 Á höfuðborgarsvæðinu urðu einnig miklar skemmdir í veðurhamnum. MYND/Stöð 2
Lögregla á Akranesi og Björgunarfélag Akraness glímdu samtals við um 60 mál í illviðrinu sem gekk yfir vesturhluta landsins í nótt. Fram kemur í frétt lögreglunnar að söluskúr ÍA á Jaðarsbökkum hafi fokið og farið þrjár veltur áður en hann staðnæmdist á bifreiðaplani og 300 fermetra skemma á fauk tugi metra í veðurhamnum. Skemman er ónýt eftir flugið. Enn fremur uður bátar fyrir tjóni og var unnið við það í nótt að festa báta bæði í höfninni og eins þá sem stóðu uppi á landi. Þá splundraðist kerrugeymlsa við Krónuna og skilti fauk af verslun BT í sömu verslunarmiðstöð. Ekki var öllu lokið því hluti þaks á hesthúsi við Æðarodda fauk í veðurofsanum. Fæstir þakka björgunarmönnum fyrir störf þeirra „Björgunarfélagsfólki verður seint fullþökkuð þeirra aðstoð. Ljóst er að vinna þeirra og lögreglu í nótt varð til þess að miklum verðmætum var bjargað og tjón lágmarkað þar sem það varð. Við þessi störf leggur björgunarfólk sig í hættu fyrir aðra við erfiðar aðstæður og oftar en ekki um miðja nótt eins og í þessu tilfelli. Það verður líka að teljast dálítið merkilegt að fæstir sem njóta góðs af láta svo lítið að þakka fyrir sig en í samtali lögreglu við formann björgunarfélagsins í morgunsárið kom fram að fátítt er að þeir heyri nokkuð frá þeim sem félagsmenn aðstoða," segir í frétt lögreglunar sem þakkar björgunarmönnum innilega fyrir veitta aðstoð. „Við gerum okkur fulla grein fyrir því að án þeirra aðstoðar hefði ástandið farið algjörlega úr böndunum og ekkert ráðist við neitt. Við gerum okkur einnig fulla grein fyrir því að það er meira en að segja það að vera rifinn fram úr rúminu og út í óveðrið til að slást við fjúkandi bárujárnsplötur og það oft á meðan eigendurnir sofa værum svefni," segir lögreglan.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira