Fjárlagafrumvarpið afgreitt frá Alþingi 13. desember 2007 13:19 MYND/GVA
Frumvarp til fjárlaga ársins 2008 var samþykkt á Alþingi nú fyrir stundu við hávær mótmæli stjórnarandstæðinga. Alls tók það þingið um tvær klukkustundir að greiða atkvæði um frumvarpið. Við umræður áður en gengið var til atkvæða bent Geir H. Haarde á að gert væri ráð fyrir 40 milljarða króna afgangi af fjárlögunum en það bættist við 82 milljarða króna afgang af fjáraukalögum þessa árs. Þær staðreyndir væru mikilvægt innlegg í baráttuna fyrir stöðugleika í efnahagslífinu. Ríkisstjórnin væri að auka aðhald í ríkisfjármálum og sömuleiðis stöðugleikann. Óskaði hann fjármálaráðherra og fjárlaganefnd til hamingju með árangurinn. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði við umræðuna að ríkisstjórnin gáði illa að sér. Mikil verðbólga væri undirliggjandi í samfélaginu en samt væri ríkisstjórnin að samþykkja aukningu á útgjöldum um 20-25 prósent. Hún væri því að gefa í verðbólgueldinn á sama tíma og allar eftirlitsstofnanir hefðu uppi varnaðarorð. Guðni gagnrýndi enn fremur fjármálaráðherra fyrir að liggja eins og ormur á gulli á fjármunum ríkisins og honum dytti ekki í hug að lækka olíugjald og hafa þannig áhrif á verðbólguna. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, gagnrýndi meðal annars að verið væri að koma á fót herstofnun og leggja á þriðja milljarð til hernaðarmála á næstu þremur árum. Það hefði ekki gerst síðan lýðveldið var stofnað. Enn fremur stefndi ríkisstjórnin að markaðsvæðingu og einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu en heilbrigðisstofnunum hefði verið haldið í úlfakreppu og yrði haldið þannig áfram. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði fjárlagafrumvarpið endurspegla sterka stöðu ríkisfjármála og í því væru mörg merkileg nýmæli. Þannig ætti að styrkja stöðu þeirra elstu og yngstu í samfélaginu og þá væru ýmsar aðgerðir í byggðamálum jafnframt að finna í frumvarpinu. Enn fremur ætti að styrkja eftirlitsstofnanir og þá væri tekið heilbrigðismálum. „Hér eru merkileg fjárlög á ferðinni," sagði Ingibjörg. Forveri hennar í embætti utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir úr Framsóknarflokknum, var henni ósammála og vakti athygli á því að tvo tíma hefði tekið að greiða atkvæði um fjárlögin. Það væri algjör nýjung og kæmi til vegna þess að ríkisstjórnarflokkarinar væru seint á ferðinni með sínar fjárlagatillögur. Niðurstaðan hafi verið sú að allir hafi fengið allt en þó hefðu vissulega nokkrir málaflokkar orðið út undan, eins og heilbrigðsmálin. Sagði Valgerður frumvarpið bera með sér áframhaldandi þenslu og Íslendingar ættu eftir að súpa seyðið af því.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Sjá meira