Innlent

Snjóflóðahætta utan þéttbýlis

MYND/Örlygur Kristfinnsson
Snjóflóðahætta getur verið utan þéttbýlis víða á landinu og féll eitt á Súðavíkurveg um miðnætti, skammt frá gamla þorpinu, sem eyddist í snjóflóðinu mikla fyrir rúmum áratug.

Snjóflóðið lokaði veginum en svo vel vildi til að enginn var þar á ferð þegar flóðið féll. Vegagerðarmenn ruddu veginn í nótt. Snjóflóðahætta vex þegar hitastig hækkar eins og núna. Þá er talsvert um svonefnd óstöðug snjóalög en það er snjór sem fallið hefur ofan á hjarnið sem fraus í hellu í hlákunni um jólin.

Nýi snjórinn hefur ekki náð að bindast undirlaginu að neinu marki þannig að þegar hlýnar í veðri og rignir dregur nýi snjórinn vatn í sig og þyngist og hætta skapast á svonefndum flekaflóðum eins og því sem féll úr Hliðarfjalli um helgina.

Snjóathugunarmenn frá Veðurstofunni fylgjast grannt með framvindu mála og hafa skoðað ýmsar fjallshlíðar í morgun. Niðurstaðan er að Veðurstofan óttast ekki snjóflóð í byggð að svo stöddu en óbyggðaferðir geta verði varasamar næstu dagana



Fleiri fréttir

Sjá meira


×