Gríðarlegur verðmunur hjá tannlæknum 27. mars 2007 18:44
Gríðarlegur verðmunur er á þjónustu barnatannlækna, samkvæmt opinberum samanburðartölum. Reikningar dýrustu tannlæknanna eru 130% yfir gjaldskrá ráðherra en þeir ódýrustu sex prósentum undir. Tannlæknum er meinað að auglýsa svo neytendur geta trauðla gert samanburð og valið ódýrasta kostinn. Kosnaður vegna barnatannlækninga hefur verið í umræðunni enda sláandi upplýsingar nýbirtar um tannheilsu barna. Henni hefur hrakað undanfarin ár og ljóst að tannskemmdir eru stéttbundnar. Árum saman hefur engin samningur verið í gildi við tannlækna en Tryggingastonfun hefur endurgreitt 75% kostnað miðað við einhliða ákvarðaða gjaldskrá ráðherra. Hún er langt undir raunkostnaði. Í dag hefur TR birt tölur um þennan mun. Kostnaður vegna almennra tannlækninga er að meðaltali 34% yfir gjaldskrá ráðherra. En þetta er vel að merkja meðaltal. Tryggingastofnun bendir á gríðarlegan mun á milli tannlækna. Þannig er gjaldskrá dýrasta tannlæknisins 130% yfir gjaldskrá ráðherra en ódýrasti tannlæknirinn er að rukka 6% undir henni. Þessi munur sést ef dæmi er tekið af barni sem þarf skoðun, tvær röntgenmyndir og flúorlökkun. Gjaldskrá Tryggingaastofnunar metur þetta verk á rúmelga 7500 krónur, og borgar 75% af þeirri upphæð - tæplega 6300. En meðaltal tannlæknanna er hátt í ellefu þúsund krónur. - Mismuninn borga foreldrar. Munurinn á hæsta verði þessara flokka er gríðarlegur. Ef miðað er við hæstu reikninga fyrir þessi viðvik myndi reikningurinn hljóða uppá yfir 31 þúsund. Samantekt á lægsta verði fyrir þessi þrjú verk myndi enda í innan við 3000 króna reikningi. Tryggingastofnun bendir á að á sama tíma og stigið hafi verið skref í átt að fjrálsri samkeppni sé tannlæknum bannað að auglýsa og því torvellt að gera verðsamanburð. Skrefið hafi því ekki verið stigið til fulls og það sé neytendum til tjóns.
Mest lesið „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Innlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Framtíð Moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Íranir skjóta á Ísrael Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Innlent Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent Fleiri fréttir Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð Moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Sjá meira