Mótmæla verðkönnun ASÍ 10. júlí 2007 18:59
Forsvarsmenn Krónunnar og Bónuss mótmæla harðlega verðkönnun ASÍ og segja hana í engu samræmi við raunverulegt verðlag á mat-og drykkjarvöru vegna verðstríðs á gosi sem stóð yfir í mars og apríl. ASÍ segir verðlækkanir engu að síður ekki skila sér til neytenda. Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað verðbreytingar í lágvöruverslunum til að fylgjast með því hvernig lækkanir a virðisaukaskatti og vörugjöldum hafi skilað sér til neytenda. Helstu niðurstöðurnar úr verðmælingum í verslunum frá tímabilinu mars til maí eru að verð hækkar mest í verslunum Krónunnar eða um 4,6 % en lækkar lítillega í Nettó eða um 0,2 %. Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ segir að á tímabilinu desember til maí hefði mat-og drykkjarvörur átt að lækka meira. Þegar verðbreytingar eru kannaðar kemur í ljós að hækkunin er mest á gosi, söfum, og vatni í Bónus og Krónunni. Í Bónus hafa drykkirnir hækkað um rúm 13 % en í Krónunni um tæp 20 %. Forsvarsmenn Bónuss og Krónunnar segja að verðstríð á gosi hafi geysað í mars og apríl og því sýni könnunin ekki raunhæfa mynd af matvöruverði. Og rekstrarstjóri Krónunnar tekur í sama streng og nefnir sem dæmi að verðið á tveggja lítra kókflösku hafi farið niður fyrir 70 krónur í báðum verslunum í mars og apríl síðastliðnum en verðið á flöskunni í dag er um 150 krónur. Í apríl hafi Krónan lækkað verðið á gosi og öðrum drykkjum um 26%.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira