Innlent

Hafís nánast kominn upp að landi Vestfjörðum

Gervitunglamynd sem tekin er af heimasíðu Veðurstofu Íslands. Hún sýnir hversu nálægt landi hafís var kominn um hádegi.
Gervitunglamynd sem tekin er af heimasíðu Veðurstofu Íslands. Hún sýnir hversu nálægt landi hafís var kominn um hádegi.

Hafís er kominn nánast upp að landi við Kóp, Sléttanes og Barða við Arnarfjörð á Vestfjörðum og segir veðurstofan að siglingaleiðir undan Vestfjörðum geti verið varasamar af þeim sökum, sérstaklega í mykri.

Að sögn Ásdísar Auðunsdóttur hjá Veðurstofu Íslands er ísinn ekki þéttur en töluvert sé þó um hafísspangir á þessum slóðum. Hún segir engar tilkynningar hafa borist um borgarísjaka á svæðinu. Veðurstofan reiknar með að hafísinn þéttist á næstunni þar sem áframhaldandi vestanátt er í kortunum. Landhelgisgæslan ætlaði í ískönnunarflug í dag en þar sem ekki tókst að gera við bilun í Fokker-vél Gæslunnar fyrr en eftir hádegi í dag þótti ekki rétt að senda vélina af stað þar sem birta fór þverrandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×