Innlent

Innbrot í Keflavík og ölvun á flugvellinum

Brotist var inn í íbúðarhús í Keflavík í morgun og höfðu þjófarnir á brott með sér ýmsa muni. Síðar í dag voru menn handteknir í Reykjavík sem höfðu undir höndum hluta af þýfinu. Þjófarnir unnu spjöll á húsi og eignum í innbrotinu. Þá fékk maður sem kom ofurölvi til landsins í flugvél að sofa úr sér í fangageymslu í Keflavík.

Innbrotið er enn í rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum. Ekki fékkst uppgefið hversu marga var búið að handtaka eða hversu margir til viðbótar væru grunaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×