Innlent

Litlar breytingar á stjórn úrvinnslusjóðs

Umhverfisráðherra hefur skipað í stjórn Úrvinnslusjóðs til næstu fjögurra ára. Fyrir henni fer Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur en auk hans sitja Guðfinnur G. Johnsen, Bryndís Skúladóttir, Sigurður Jónsson og Sigurður Óli Kolbeinsson í stjórninni.

Eftir því sem segir í tilkynningu er stjórnin óbreytt frá fyrri stjórn nema hvað í stað Stefáns Hermannssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnar, sem var fulltrúi sveitarfélaga í stjórn, kemur Sigurður Óli Kolbeinsson, sviðstjóri lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×