Líkamsræktarfólk helstu neytendur efidríns 15. febrúar 2007 18:45
Þeir sem stunda líkamsrækt eru helstu neytendur efidríns en Tollgæslan í Reykjavík lagði hald á tvö hundruð og fjörtíu þúsund ólöglegar efidríntöflur í venjulegri vörusendingu nú rétt fyrir helgi. Þetta er mesta magn efidríns sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er búið að handtaka neinn eða yfirheyra. Um var að ræða venjulega póstsendingu á vegum fyrirtækis og innihaldið merkt. Grunur lék hins vegar á að merking væri ekki í samræmi við innihaldið og að efnagreiningu lokinni kom í ljós að um var að ræða örvandi efnið efidrín í bland við koffein. Efidrín er örvandi lyf sem hefur áhrif á miðtaugakerfið og er náskylt amfetamíni. Efidrín hefur verið notað sem megrunarlyf og mátti finna í fæðubótarefnum í þeim tilgangi að grenna og brenna en efnið örvar hjartsláttinn og eykur súrefnisupptöku. Lyfið var bannað hér á landi fyrir nokkrum árum en er enn til í töfluformi sem undanþágulyf til að auka súrefnisupptöku við ofþreytu. Skúli Skúlason lyfjafræðingur hjá Lyfjaráði ÍSÍ segir að notkunin hafi lítið sem ekkert mælst innan skipulögðu íþróttahreyfingarinnar. Notkunin sé hjá öðrum hópi. Aðspurður um helstu hættur við neyslu efidríns segir Skúli að í Bandaríkjunum megi rekja fjölmörg dauðsföll til neyslu efnisins sem og hjartaáföll. Grunur leikur á að Efidrín sé líka notað við framleiðslu á Medamfetamíni en samkvæmt upplýsingum Fréttastofu sækja fíklar ekki í efidrín. Neytendur efnisins séu frekar venjulegt fólk sem stundi líkamsræktarstöðvar og skemmtistaði.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Játar innbrot í búin Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Fleiri fréttir Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent