Gubbi Morthens á flottasta bílnum á Stöðvarfirði 12. maí 2007 10:30 Guðbjörn Sigurpálsson í bílnum sem hann keypti af Bubba. mynd/Björgvin Valur
Eftir því hefur verið tekið á Stöðvarfirði að nýr bíll er kominn í plássið. Um er að ræða svartan Land Rover Discovery jeppa árgerð 2006 sem var áður í eigu ekki ómerkari manns en Bubba Morthens. Nýi eigandinn er trillusjómaðurinn Guðbjörn Sigurpálsson sem gengur nú undir gælunafninu Gubbi Morthens í bænum. „Jú, það er rétt, ég keypti bílinn og viðurkenni að það var ekki síst vegna þess að hann var áður í eigu Bubba Morthens,“ segir Guðbjörn í samtali við Fréttablaðið. „Þetta er fínasti bíll en mér fannst þó skrítið að það var búið að keyra hann 16 þúsund kílómetra án þess að setja hann í smurningu. Ég veit ekki hverjum er þar um að kenna, B&L eða Bubba, en það verður að hugsa vel um þessa bíla.“ HVER GLEYMDI SMURNINGUNNI? Land Roverinn hans Bubba hafði aldrei farið í smurningu en Guðbjörn veit ekki hvort B&L eða Bubbi ber ábyrgð á því. Guðbjörn vill ekki viðurkenna að hann sé einn af hörðustu aðdáendum Bubba en segist þó hafa gaman af honum. „Hann hefur nú samið mörg góð lögin en ég kunni aldrei við hann í dómarahlutverkinu í Idol-keppninni. Hann er alltof mikill hrokagikkur til að geta dæmt í slíkri keppni,“ segir Guðbjörn og má greina vott af vanþóknun í röddinni. STOLTUR EIGANDI Það er flestra mat að Land Roverinn hans Guðbjörns sé með fallegustu bílum Stöðvarfjarðar nú um stundir. fréttablaðið/björgvin valur Ekki hefur Guðbjörn hlustað á Bubba í Land Rovernum eftir að hann festi kaup á bílnum þar sem hann á enga diska með kónginum. „Það fylgdu engir diskar með í kaupunum. Er ekki Sjóvá líka búin að kaupa allt klabbið af honum?“ spyr Guðbjörn. Það var auðsótt mál fyrir blaðamann að fá Guðbjörn til að stilla sér upp í myndatöku en þó með einu skilyrði. „Ég vil ekki svona „Guðbjörn fallinn“ fyrirsögn. Ég hætti að reykja fyrir þremur árum og er ekki fallinn enn,“ segir Guðbjörn og hlær.
Mest lesið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Lífið Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Sjá meira