Skylt verði að stuðla að jafnrétti í nefndum og stjórnum hins opinbera 7. mars 2007 15:49
Lagt til að í allar nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga verði skylt að tilnefna karl og konu þannig að hlutfall hvors kyns verði ekki minna en 40 prósent samkvæmt nýju frumvarpi að breytingum á Jafnréttislögum. Það var nefnd undir forystur Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara, sem vann að endurskoðun á jafnréttislögunum í tilefni þess að 30 ár voru liðin í fyrra frá því að lögin tóku gildi. Þar er einnig lagt til að Jafnréttisstofu verði veittar heimildir til þess að beita opinberar stofnanir, sveitarfélög, atvinnurekendur eða félagasamtök dagsektum ef þau láta ekki af hendi upplýsingar vegna einstakra mála sem rata inn á borð stofunnar. Fram kemur í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu að einnig sé lagt til að kærunefnd jafnréttismála fái heimild til að kveða upp bindandi úrskurði, að fjölgað verði í Jafnréttisráði og verkefni þess ákveðin í þingsályktun. Auk þess er lagt til að ráðið taki þátt í undirbúningi jafnréttisþings sem haldið verði á tveggja ára fresti. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að jafnréttisáætlunum fyrirtækja sem hafa 25 starfsmenn eða fleiri fylgi framkvæmdaáætlun um þau atriði sem vinna skal að til að ná fram jafnrétti kynjanna á vinnustaðnum. Á að endurskoða þessar áætlanir á þriggja ára fresti. Þá er enn fremur lagt er til að launamanni sé hvenær sem er heimilt að veita þriðja aðila upplýsingar um laun eða önnur starfskjör sín. Enn fremur vilja frumvarpshöfundar að menntamálaráðherra ráði jafnréttisráðgjafa sem fylgi því eftir að kynjasamþættingar verði gætt við alla stefnumótun og áætlanagerð í skólakerfinu. Enn fremur er lagt til taka skuli mið af menntun, starfsreynslu, sérþekkingu eða öðrum sérstökum hæfileikum sem krafa er gerð um í viðkomandi starf samkvæmt lögum eða reglugerðum eða telja verði annars að komi að gagni í starfinu þegar metið er hvort örðu hvoru kyninu hafi verið mismunað við ráðningu í starf. Að lokum er lagt til að jafnréttisumsögn fylgi öllum stjórnarfrumvörpum á Alþingi. Er það sagt gott dæmi um kynjasamþættingu í verki. Frumvarpið og greingargerð með því verða birt á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins þar sem hægt er að gera athugasemdir við það. Frumvarpið má sjá hér að neðan.
Mest lesið Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Erlent Fleiri fréttir Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Sjá meira