Felldi úr gildi áminningu og sekt á hendur Atorku 19. desember 2007 15:46 Magnús Jónsson er forstjóri Atorku Group.
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi þá ákvörðun Kauphallar Íslands að áminna og sekta Atorku Group í tengslum við fréttatilkynningu frá félaginu vegna hálfs árs uppgjörs ársins 2006. Þá ber Kauphöllinni að birta dóminn í heild sinni á fréttavef sínum, ellegar leggjast á hana 50 þúsund króna dagsektir sem renna til Atorku Group. Forsaga málsins er sú að Atorka Group sendi frá sér fréttatilkynningu 30. ágúst í fyrra vegna sex mánaða uppgjörs félagsins. Þar kom fram í fyrirsögn að hagnaður félagsins hefði verið 4,9 milljarðar króna á fyrri helmingi ársins en þar var vísað til móðurfélagsins. Við lestur uppgjörsins kom í ljós að hagnaður Atorkusamstæðunnar var 187 milljónir króna. Vegna þess að fyrirsögn fréttatilkynningarinnar og meginmál fjallaði um uppgjör móðurfélagsins en ekki samstæðuna hafði Kauphöllin samband við Atorku og fór fram á leiðréttingu. Í kjölfarið sendi Atorka nokkrar fréttatilkynningar sem félagið taldi fullnægjandi en því var Kauphöllin ósammála. Síðasta fréttatilkynningin var birt 26. september í fyrra en Kauphöllin taldi hana einnig ófullnægjandi þar sem enn væri fjallað um móðurfélagið í fyrirsögninni áður en fjallað væri um samstæðuna. Þann 2. október sendi Kauphöllin Atorku svo bréf þar sem félagið var áminnt og sektað um 2,5 milljónir króna fyrir brot á reglum Kauphallarinnar.Við þetta sættu forsvarsmenn Atorku sig ekki og leituðu til dómstóla. Dómurinn taldi að ekki væri skýrt hvort áminning Kauphallarinnar væri vegna upphaflegrar fréttatilkynningar eða lokaútgáfunnar. Taldi dómurinn að horfa yrði til síðustu tilkynningarinnar frá 26. september við mat á viðurlögunum sem Kauphöllin beitti. Komst dómurinn enn fremur að því að reglur Kauphallar fyrir útgefendur verðbréfa væru ekki það skýrar og afdráttarlausar að þær segðu fyrir um hvað nákvæmlega yrði að vera í fyrirsögn tilkynninga hverju sinni. Reglurnar virtust jafnframt veita útgefendum ákveðið svigrúm varðandi innihald tilkynninga svo lengi sem þær upplýsingar sem að lágmarki þurfa að koma fram væru skýrlega hluti af tilkynningum útgefenda. Upplýstum lesanda tilkynningar Atorku frá 26. september hefði mátt vera afkoma samstæðunnar ljós og einnig yrði að hafa í huga að ekki hefðu verið gerðar neinar athugasemdir við reikningsskil Atorku. Var því ákvörðun Kauphallarinnar felld úr gildi.
Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Fleiri fréttir Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Sjá meira