Sektaður fyrir að taka lögreglumann í bóndabeygju 19. desember 2007 12:23
Maður hefur verið dæmdur fyrir að trufla lögreglu við skyldustörf. Hann hélt lögreglumanni í skrúfstykki og truflaði með því handtöku. Ríkissaksóknari höfðaði málið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á hendur manni frá Skagaströnd. Skagstrendingurinn var staddur á Geislagötunni á Akureyri í vor, ekki langt frá Sjallanum, og braut gegn valdstjórninni þegar hann kom aftan að lögreglumanni sem þar var staddur við handtöku, greip um hendur hans og búk með báðum höndum, og hélt höndum lögreglumannsins föstum við síðu um nokkurt skeið. Þannig hindraði Skagstrendingurinn lögreglumanninn við skyldustörf. Gárungarnir gætu sagt að löggan hefði verið tekin í hálfgerða bóndabeygju en valdstjórninni þótti málið ófyndið og kærði. Skagstrendingurinn játaði brotið og lýsti iðrun fyrir dómi. Hann var dæmdur til sð greiða 60.000 króna sekt fyrir athæfið en sæta ella fangelsi í fjóra daga.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira