Innlent

Lögreglan leitar að eiganda myndavélar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir eiganda myndavélar sem fannst við húsleit í austurborg Reykjavíkur í gærdag.

Þar fundust nokkrir munir sem talið er að séu þýfi en myndavélin var þar á meðal. Hún er af Nikon-gerð eins og myndin ber með sér. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×