Innlent

Forseti Íslands fundaði með forseta Kína

Ólafur Ragnar Grímsson er í heimsókn í Kína.
Ólafur Ragnar Grímsson er í heimsókn í Kína.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti í morgun fund með Hu Jintao, forseta Kína í Shanghai borg, en Ólafur Ragnar er þar í boði kínverska forsetans. Þá verður hann viðstaddur setningu Special Olympics, íþróttahátíð seinfærra og þroskaheftra, en þáttakendur í þeim eru um átta þúsund frá 165 löndum. Í Kínaferðinni mun Ólafur Ragnar líka heimsækja svæði þar sem íslensk fyrirtæki hafa haslað sér völl.-

Að sögn Loga Bergmanns Eiðsonar stóð fundur forsetanna lengur en gert hafði verið ráð fyrir. Kínverjar vilja auka samstarf og viðskipti við Íslendinga. Þá lýstu forsetarnir yfir ánægju með samstarf ríkjanna undanfarin ár.

Li Peng, forseti kínverska þjóðþingsins, kom í opinbera heimsókn til Íslands fyrir sjö árum og Jiang Zemin, fyrrverandi forseti Kína kom tveimur árum seinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×