Innlent

Síldarvinnslan í Tallin

Um það bil 320 manna hópur starfsmanna Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, og frá starfsstöðvum fyrirtækisins á Seyðisfirði, í Helguvík og á Siglufirði, er kominn til Tallin í Eistlandi. Þar stendur til að halda veglega árshátíð í Óperuhúsinu  annað kvöld.

Hópurinn hélt utan frá Egilsstaðaflugvelli í fyrrakvöld á þremur leiguþotum, sem munu flytja hann heim á sunnudag. Öll skip fyrirtækisins eru í höfn, því sjómennirnir eru með í för, en nú eru þess minnst að 50 ár eru fra´stofnun Síldarvinnslunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×