Innlent

Vilja láta gera styttu af Guðmundi jaka

Samfylkingarfélagið í Breiðholti í Reykjavík hvetur borgaryfirvöld og verkalýðshreyfingu til þess að koma fyrir styttu af Guðmundi J. Guðmundssyni jaka, verkalýðsleiðtoga og fyrrverandi formanni Dagsbrúnar, á áberandi stað í Breiðholti. Um þetta ályktaði félagið í gær. Í ályktuninni segir að Guðmundur hafi átt stóran þátt í uppbyggingu Breiðholtsins og væri því réttmætur sómi sýndur með framtaki af þessu tagi.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×