Vill skoða alvarlega að taka við skjólstæðingum Byrgisins 16. janúar 2007 12:04
Forstöðumaður Samhjálpar kveðst reiðubúinn til að skoða það alvarlega að taka við skjólstæðingum Byrgisins en til að svo geti orðið verði ríkið að leggja til bæði fjármuni og aðstöðu. Í tengslum við endurskoðun á fjárstuðningi við Byrgið greindi Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra frá því í gær að rætt hafi verið við velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Samhjálp um úrræði fyrir skjólstæðinga Byrgisins. Samhjálp hefur þegar fallist á að rýma til á meðferðarheimili Samhjálpar að Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal fyrir þá sex sem voru á heimili Byrgisins að Efri-Brú þegar því var lokað. Að sögn Heiðars Guðnasonar, forstöðumanns Samhjálpar, hefur engin ákvörðun verið tekin um aðra skjólstæðinga Byrgisins en eindreginn vilji sé af hans hálfu til að koma að því að finna fyrir þá úrræði. Í dag anni Hlaðgerðarkot hins vegar ekki meiri eftirspurn því nú þegar verði að vísa frá 70-75 prósentum þeirra sem þangað leita. Því er ljóst að ekki nægi að stjórnvöld leggi fé til með fólkinu heldur verður meira að koma til. Spurður hvort Samhjálp geti hugsað sér nýta húsakynnin að Efri-Brú segir Heiðar það vel koma til greina en líklega verði þó að gera einhverjar breytingar á þeim áður. Samhjálp hefur veitt hefðbundna áfengismeðferð um langt árabil. Samtökin eru sjálfstæð og óháð en stjórn þeirra er sú sama og Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu.
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Fleiri fréttir Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Sjá meira