Mikið keypt af húsgögnum í nóvember 14. desember 2007 15:50 MYND/Vilhelm
Svo virðist sem jólaverslun þessa árs hafi byrjað fyrir alvöru í húsgagnaverslunum landsins í nóvember því velta slíkra verslana jókst um nærri fimmtung milli október- og nóvembermánaða samkvæmt tölum Rannsóknarseturs verslunarinnar. Almennt jókst veltan í dagvöruverslunum um 0,3 prósent milli mánaðanna en hins vegar jókst hún um rúm 12 prósent þegar nóvembermánuður í ár er borinn saman við sama mánuð í fyrra. Sala áfengis jókst í nóvember eftir að hafa dregist saman í tvo mánuði í röð. Sala áfengis í nóvember var rúmum tíu prósentum meiri en í mánuðinum á undan og nærri 20 prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Velta í fataverslun jókst um 4,3 prósent á milli október og nóvember en skóverslun dróst hins vegar saman um 2,7 prósent á sama tíma ef miðað er við breytilegt verðlag. Mælingar Rannsóknaseturs verslunarinnar á smásöluvísitölu fata- og skóverslunar hófust í byrjun þessa árs og því er ekki til samanburður á þessum tegundum verslunar frá því í fyrra. Rannsóknarsetur verslunarinnar bendir enn fremur á að á tveggja ára tímabili, frá nóvember 2005 til nóvember í ár, hafi veltuauking í dagvöruverslunum numið tæplega 27 prósentum á meðan verðlag á dagvöru hækkaði um tæp sex prósent. Íslenskir neytendur verji því rúmlega fjórðungi meira til kaupa á dagvöru nú en fyrir tveimur árum ef miðað er við verðlag hvers árs.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira