Vá fyrir dyrum ef tengsl skóla og kristins menningararfs slitna 12. desember 2007 16:10 MYND/Stefán
Slitni tengsl skóla og hins kristna menningararfs er vá fyrir dyrum, sagði Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag um stöðu þjóðkirkju, kristni og kristnifræðslu. Það var Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sem var málshefjandi og vakti athygli á því að í nýjum grunnskólalögum væri búið að taka út ákvæði um að skólastarf mótaðist af kristilegu siðgæði. Sagðist hann vilja kristni nyti vafans og að málinu yrði frestað meðan það yrði rætt betur á öllum sviðum samfélagsins. Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra sagði að málið hefði verið honum hugleikið bæði sem menntamálaráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann hefði áður bent á að íslenskir skólar hefðu vaxið úr jarðvegi kirkjunnar og slitnuðu tengsl skóla og hins kristna menningarfs væri vá fyrir dyrum. Ráðherra vitnaði til bréfs biskups til Siðmenntar á dögunum þar sem fram hefði komið að lögð yrði áhersla á kristni og trúarbragðafræðslu í skólum á faglegum grunni. Hann tæki heils hugar undir orð biskups. Sagði hann að það yrði íslensku þjóðinni til varanlegs tjóns ef hætt yrði að leggja rækt við hinn kristna arf. Björn benti hins vegar á að í nýju frumvarpi fælist ekki andstaða við kristin boðskap. Þá sagðist hann ekki hafa komið að gerð hins nýja lagafrumvarps og við þeirri spurningu Guðna Ágústssonar hvort hann hygðist beita sér fyrir frestun málsins sagði ráðherra að það myndi hann ekki gera. Hann sagði að Alþingi hefði aldrei brugðist hinum kristna málstað. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, benti á að hér væri sterkt samband á milli ríkis og kirkju en jafnframt gilti trúfrelsi. Vinstri - græn legðu mesta áherslu á að stuðla að virðingu og gagnkvæmum skilningi trúarhópa og að fræðsla um trúmál og heimspeki yrði efld í skólum. Gera verður greinarmun á trúboði og fræðslu Fjölmargir þingmenn tóku til máls og vildu flestir þeirra að ekki yrði vikið frá kristnu siðgæði í skólastarfi. Hins vegar yrði að gæta þess að trúfrelsi ríkti í landinu. Bent var á að 82 prósent þjóðarinnar væru í Þjóðkirkjunni og því væri fráleitt að vísa kristninni úr skólum þegar hún hefði svo sterka stöðu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði nefndina sem unnið hefði að endurskoðun grunnskólalaga hafa gert sér grein fyrir að breytingin sem um ræddi væri umdeild. Samráð hefði verið haft við Þjóðkirkjuna, guðfræðideild Háskóla Íslands og umboðsmann barna og horft hefði verið til ákvarðana Mannréttindadómstóls Evrópu. Ekki hefði verið stætt á öðru en að gera breytingu á þennan veg. Hins vegar væri síður en svo verið að úthýsa kristninni úr skólunum. Kristin fræði gegndu mikilvægu hlutverki í aðalnámskrá og vandséð væri hvernig ungt fólk ætti að öðlast skilning á samfélaginu án skírskotunar til kristninnar. Hins vegar yrði að gera greinarmun á trúboði og fræðslu og það væri til að mynda hlutverk kirkjunnar að sjá um fermingarfræðslu barna.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira