Læknar úr neyðarbílum og inn á bráðadeild 12. desember 2007 14:23 MYND/Vilhelm
Læknar á vegum Landspítalans munu hætta að ganga vaktir á neyðarbílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) frá og með 15. janúar næstkomandi.Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá slökkviliðinu og bráðasviði Landspítalans. Þar segir enn fremur að þetta sé hægt vegna þess að háskólamenntunuðm bráðatæknum hjá slökkviliðinu hafi fjölgað mikið að undanförnu. Kröftum lækna í framhaldsnámi á slysa- og bráðasviði Landspítalans verði því beint að því að efla bráðaþjónustuna innan spítalans enn frekar. Í tengslum við breytinguna munu Landspítali og slökkvilið leitast við að styrkja samstarf sitt enn frekar til að tryggja gæði bráðaþjónustunnar á vettvangi slysa og bráðra veikinda.Í tilkynningunni segir enn fremur að breytingarnar séu gerðar með vitneskju og eftir atvikum samráði þeirra sem best þekkja til bráðaþjónustu innan og utan stofnana, landlækni, Sjúkraflutningaskólans, SHS og sérfræðinga spítalans. Tugir þúsunda leiti árlega til bráðamóttökunnar og er von slysa- og bráðasviðs Landspítala sú að með þessu móti verði unnt að koma betur til móts við þarfir þeirra.Áhersla á samskipti bráðatækna og lækna á sjúkrahúsi„Störf lækna sem koma á slysa- og bráðasviðið til framhaldsnáms og þjálfunar eru bráðaþjónustunni innan Landspítala afar mikilvæg. Fjarvera þeirra vegna reglulegra vakta á sjúkrabílum hefur óneitanlega valdið auknu álagi á annað starfsfólk í bráðaþjónustu spítalans en þeim fjölgar sífellt sem þurfa á þjónustunni að halda," segir enn fremur í tilkynningu Landspítalans og SHS.Bent er á að bráðtæknar slökkviliðsins séu menntaðir í Bandaríkjunum þar sem hefð er fyrir því að bráðatæknar annist bráðaþjónustu utan stofnana. Mikil áhersla sé hins vegar lögð á samskipti þeirra og sérfræðinga á slysadeild á meðan verið er að koma sjúklingi undir læknishendur og hyggjast Landspítali og SHS styrkja þann þátt í samstarfi sínu.Enn fremur verður samstarf þessara aðila um gæðaeftirlit og símenntun sjúkraflutningamanna eflt enn frekar. Þátttaka í störfum á vettvangi við hlið sjúkraflutningamanna verður eftir sem áður hluti af þjálfun lækna í framhaldsnámi í bráðalækningum.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira