Illa unnin frumvörp um tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs 12. desember 2007 11:06
Þingmenn úr Vinstri - grænum og Framsóknarflokknum gagnrýndu á Alþingi í dag hversu illa undirbúin tvö frumvörp ríkisstjórnarinnar um tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðsins væru. Atkvæðagreiðsla var eftir aðra umræðu um frumvörpin tvö í morgun. Annað þeirra kveður meðal annars á um flutning málefna aldraðra og almannatrygginga frá heilbrigðisráðuneytinu til félagsmálaráðuneytisins. Í því er einnig bráðabirgðaákvæði um að koma á fót stofnun sem hefur meðal annars það hluverk að annast kaup, greiðslur og samninga um heilbrigðisþjónustu og framkvæmd þeirra málaflokka almannatrygginga sem heyra undir heilbrigðisráðherra. Er ráðherra falið að skipa forstjóra stofnunarinnar og sömuleiðis stjórn. Skrifað upp á óútfylltan tékka fyrir heilbrigðisráðherra Álfheiður Ingadóttir úr Vinstri - grænum gagnrýndi að til stæði að skipa forstjóra og stjórn þessarar stofnunar en hins vegar ætti ekki að leggja fram frumvarp um stofnunina í vor. Vildi hún að þetta bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu yrði tekið út. Þá sagði flokksbróðir Álfheiðar, Ögmundur Jónasson, að verið væri að koma á fót verslunarstofnun fyrir heilbrigðisþjónustu í landinu og Samfylkingin hefði skrifað upp á óútfylltan tékka fyrir heilbrigðisráðherra í málinu. Þingmenn Framsóknarflokksins gagnrýndu einnig frumvarpið og sömuleiðis frumvarp um tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðsins. Sagði Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknar, að verið væri að búa til örráðuneyti fyrir Samfylkinguna og vísaði þar til aðskilnaðar viðskiptaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins. Skemmdarverk framin á Stjórnarráðinu Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins. sagði breytingum á stjórnarráðinu troðið í gengum kok stjórnarþingmanna og að breytingarnar myndu að líkindum kosta íslenska skattgreiðendur um einn milljarð króna. Þessar breytingar hefðu enn fremur leitt til þess að brostið hefði á flótti starfsmanna úr ráðuneytunum og harmaði Guðni að jafnhófstilltur maður og Geir H. Haarde forsætisráðherra hefði framið þetta skemmdarverk. Lýsti hann jafnframt vantrausti á Sjálfstæðisflokkinn.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira