Tvísýnt að stúlkan haldi fingrinum 17. desember 2007 18:42
Móðir stúlku sem missti fingur við sundlaugarbakka í Laugardagslauginni um helgina íhugar að höfða mál á hendur Reykjavíkurborg vegna slyssins. Lítil von er að stúlkan haldi fingrinum þrátt fyrir margra klukkustunda aðgerð. Stúlkan, sem er átta ára, var að leik með vinum sínum við sundlaugarbakkann þegar slysið átti sér stað. Svo virðist sem stúlkan hafi flækt fingurinn í sérstakan vír sem notaður var til að halda uppi viðvörunarskilt. Ekki vildi betur til en svo að hún datt en við það skarst fingurinn af. Stúlkan gekkst undir margra klukkustunda aðgerð á Landspítalanum í Fossvogi aðfarnótt sunnudags þar sem reynt var græða fingurinn aftur á höndina. Um vísifingur hægri handar er að ræða. Aðgerð sem þessi er flókin og erfið en samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum er afar tvísýnt um að stúlkan haldi fingrinum. Það ætti að skýrast seinna í vikunni. Móðir stúlkunnar sagðist í samtali við fréttastofu í dag íhuga að höfða mál á hendur Reykjavíkurborg vegna slyssins. Er hún afar ósátt við hvernig gengið var frá vírnum við sundlaugarbakkann. Logi Sigurfinnsson, forstöðumaður Laugardalslaugar, sagðist harma slysið í samtali við fréttastofu. Hann sagði að umrædd viðvörunarskilti hefðu verið sett upp síðasta vor til að koma í veg fyrir dýfingar í grynnri enda laugarinnar - en alvarlegt slys átti sér stað vegna þessa í apríl. Um þrjú skilti hefði verið að ræða en nú sé búið að taka þau öll niður.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira