Forsetinn heimsótti Harvard og MIT 4. apríl 2007 14:22 Ólafur Ragnar Grímsson og Jacky O´Neill hjá Harvard-háskólanum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var í gær gestur við Harvard-háskóla þar sem hann flutti fyrirlestur í boði hins virta prófessors Michaels Porter sem þekktur er fyrir rannsóknir sínar á samkeppnishæfni þjóða. Í tilkynningu frá skrifstofu forsetans segir að stúdentar frá 50 löndum hafi hlýtt á fyrirlesturinn sem fjallaði um íslenskt viðskiptalíf og þróun þess. Auk þess tók forsetinn þátt í um fjögurra klukkustunda samræðum um árangur Íslendinga á undanförnum árum og tækifæri lands og þjóðar í framtíðinni. Fyrirlestur forsetans verður hluti af námsefni um Ísland sem Harvard Business School dreifir til um 100 háskóla um allan heim. Í kjölfar fyrirlestrarins sat forsetinn kvöldverð í boði Michaels Porter ásamt ýmsum forystumönnum úr bandarísku viðskiptalífi. Forsetinn heimótti í dag MIT-háskólann í Boston sem er einn helsti vísinda- og tækniháskóli Bandaríkjanna. Þar átti hann viðræður við forsvarsmenn háskólans og vísindamenn á sviði orku- og loftslagsmála. Þá átti Ólafur Ragnar ítarlegan fund með Jefferson Tester prófessor en hann er aðalhöfundur nýrrar skýrslu um jarðhita í Bandaríkjunum og mögulega nýtingu hans sem vakið hefur mikla athygli. Með Ólafi Ragnari í för í heimsókninni til MIT voru Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, og Ágúst Valfells, forstöðumaður Orkurannsóknaseturs háskólans. Þau kynntu nýjan samstarfssamning við MIT sem veitir íslenskum fyrirtækjum tækifæri til að nýta sér sérþekkingu og sérfræðinga MIT á ýmsum sviðum. Það er Háskólinn í Reykjavík sem sér um framkvæmd hans í umboði Viðskiptaráðs og Samtaka iðnaðarins.
Forsetaembættið Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira