Á nærbuxum á veitingahúsi 5. apríl 2007 09:15 Halldór bragason segir Íslendinga hafa verið blúsara síðan þeir byggðu land.
Vandræðalegasta augnablikið? Þegar ég bjó í Tryggvagötu fór ég eitt sinn á nærbuxunum með ruslið í ruslaopið. Það vildi ekki betur til en svo að í vindhviðu skelltist hurðin að íbúðinni minni aftur og á nærbuxunum varð ég að fara inn á Jónatan Livingston máv til að fá að hringja á lásasmið.Eftirlætisborg? Reykjavík. Lítil og þægileg borg með litlum vegalengdum svo það tekur stutta stund að sinna útréttingum sínum. Gáfulegustu orð sem þú hefur heyrt? Orka er massi sinnum ljóshraði í öðru veldi.Hvaða íslensku tónlistarmenn finnst þér standa fremstir í dag? Blúsararnir á Blúshátíð.Ef þú yrðir að vera einhver önnur fræg manneskja í einn dag, hver myndirðu vilja vera? Alla vega myndi ég ekki vilja vera Bubbi Morthens. Aftur á móti væri ég vel til í að taka eina umferð í golfi sem Tiger Woods og sigra bróður minn.Trúir þú á drauma? Já, ég hef trú á draumum mínum, jafnt í svefni sem vöku. Draumarnir rætast stundum og það er lífsnauðsyn að eiga drauma.Í hvaða stjörnumerki ertu? Sporðdrekanum. Ég held að ég hafi þær dulrænu orkulindir sem sporðdrekinn er sagður hafa.Hver er þín mesta nautn? Algjörlega óprenthæft.Hver er þín fyrsta minning? Einhverjar stelpur, vinkonur systur minnar, kíkjandi inn í vagninn segjandi: „Guð hvað hann er sætur.“Hver er þinn fararskjóti? Tveir jafnfljótir.Hvert er þitt eftirlætisdýr? Blettatígur heillar. Hann er svo fallegur og ég hef verið svo heppinn að sjá þetta hraðskreiðasta dýr jarðar hlaupa í Afríku.Yfir hverju hefurðu mestar áhyggjur í augnablikinu? Ég týndi einni aðalstjörnu Blúshátíðar, Zoru Young, en fann hana rétt áðan í Boston. Hún flýgur hingað í fyrramálið (miðvikudag 4. apríl).Hvað finnst þér það ofmetnasta í íslensku samfélagi? Meint álit Íslendinganna á sjálfum sér; að þeir séu stórkostlegir.Hvaða kæki ertu með? Engir kækir.Hvað er það besta sem þú hefur bragðað um ævina? Hangikjötið á jólunum með strákunum mínum.Hvað er það sem blúsinn gerir fyrir þig? Hann hefur gert margt fyrir mig í gegnum tíðina. Ég hef kynnst alls kyns fólki og öðrum löndum og lært margt um lífið og tilveruna. Síðast en ekki síst hefur hann gert mig að betri manni.Undir hvaða aðstæðum er best að syngja? Þegar andinn kemur yfir mann. Stundum koma lögin einfaldlega til manns þegar maður sest niður með gítarinn. Streyma þá fram líkt og skrúfað sé frá krana.Af hverju blúshátíð? Ég tel að hver einasta höfuðborg með vott af sjálfsvirðingu eigi að halda alvöru blúshátíð og fyrir nokkrum árum var það markmið að koma alvöru blúshátíð á fót sem Íslendingar gætu verið stoltir af og það tókst. Hér áður fyrr var dymbilvika ein leiðinlegasta og drungalegasta vika ársins en okkur blúsurum hefur tekist að snúa því við og bætt þannig mannlífið.Er til eitthvað sem heitir íslenskur blús? Já. Íslendingar eru blúsarar norðursins frá fornu fari. Kváðu rímur til að halda á sér hita, sem er ekkert annað en blús. Þurfum ekki annað en að minnast vísunnar „Yfir kaldan eyðisand“.
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Auður segir skilið við Gímaldið Menning „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Fleiri fréttir „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Sjá meira