Innlent

Vestfirska þurrviðrið gerir besta harðfiskinn

Finnbogi Jónasson hefur síðustu þrjá áratugina verkað harðfisk á Ísafirði.
Finnbogi Jónasson hefur síðustu þrjá áratugina verkað harðfisk á Ísafirði. MYND/Hafþór

Þeim fækkar sem þurrka fisk á hjöllum en sífellt fleiri kjósa að fara þá leið að þurrka hann við blásara. Fiskþurrkun í hjöllum upp á gamla mátann er enn stunduð á Vestfjörðum en þar segja menn vestfirska þurrviðrið gera besta harðfiskinn.

Finnbogi Jónasson hefur síðustu þrjá áratugina verkað harðfisk á Ísafirði. Fiskinn þurrkar hann í hjalla í Arnardal og hann segir þeim fara fækkandi sem verka harðfisk á þann máta. Það tekur einn og hálfan mánuð að þurrka fiskinn í hjalla en aðeins tekur þrjá til fjóra daga að þurrka harðfisk í klefa við blásara. Finnbogi segir skilyrðin á Vestfjörðum fyrir harðfiskþurrkun einstaklega góð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×