Vasaþjófar rændu konu aleigunni á Laugavegi 18. desember 2007 13:04 MYND/GVA
Ragnheiður Guðjónsdóttir lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu í gær að vasaþjófar rændu af henni peningaveskinu í verslun á Laugaveginum. Í veskinu var aleiga Ragnheiðar, en hún notar ekki greiðslukort og hafði tekið út um 30 þúsund krónur í bankanum og hugðist hún láta þá duga til jóla. Ragnheiður segist hafa tekið eftir því þegar hún stóð og skoðaði vörur að kona stillti sér þétt upp við hana. „Ég færi mig til þess að gefa henni pláss en þá er maður kominn upp að mér líka þannig að ég komst eiginlega ekkert. Þetta endaði með því að ég þurfti eiginlega að ýta við konunni til að komast leiðar minnar. Ég fyrrtist nú aðeins við og þegar ég leit um öxl brosti maðurinn til mín." Ragnheiður segist því næst hafa farið til þess að borga vörurnar sem hún ætlaði sér að kaupa en þegar hún seildist eftir peningaveskinu sem hún geymdi í töskunni sinni var það horfið. Hana segist strax hafa grunað hvers kyns var, en fólkið var þá á bak og burt. „Ég fór samt í búðina sem ég hafði verslað í rétt áður til að ganga úr skugga um að veskið væri ekki þar. Svo snéri ég til baka í verslunina og hringdi á lögregluna." Ragnheiður segir það afar slæma tilfinningu að lenda í klónum á vasaþjófum. Hún segist hafa verið í uppnámi og þegar lögregla reyndi að fá lýsingu á fólkinu hjá henni mundi hún lítið eftir því. „Manni finnst að verið sé að ráðast inn í einkalíf manns, en ég er fegin að þau tóku ekkert annað úr töskunni en peningaveskið. En eftir að hafa lent í þessu mun ég passa mig mun betur en áður. Maður býst ekki við því að lenda í svona hér á landi. Maður varar sig í útlöndum, en ekki hér heima," segir Ragnheiður. Friðrik Smári Björgvinsson, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segist ekki hafa heyrt af því að vasaþjófar leiki lausum hala í Reykjavík. „Það er afar sjaldfæft að við fáum mál af þessu tagi inn á borð til okkar," segir Friðrik. „Menn hér á bæ kannast ekki við að aukning sé á brotum sem þessum og engin merki eru um að einhverjir standi í skipulegum vasaþjófnaði í Reykjavík."
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira