Ýjar að því að REI-mál hafi verið pöntuð árás á Vilhjálm 18. desember 2007 12:45
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins gerir stólpagrín að Sjálfstæðismönnum í pistli á heimasíðu sinni í nótt. Hann ýjar að því að „hamfarahlaupið gegn REI", eins og ráðherrann orðar það, hafi verið pöntuð árás gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, fyrrverandi borgarstjóra. Pistilinn skrifar Össur í nótt undir titlinum „Ef væri ég Þorgerður sæi Orkuveita Reykjavíkur um Skaupið". Eins og kunnugt er hefur Landsvirkjun tilkynnt um stofnun hlutafélagsins Landsvirkjunar Power til að draga úr áhættu fyrirtækisins af útrásarerkefnum. Hlutafélagið á alfarið að vera í eigu Landsvirkjunar. Fyrr á árinu stofnaði Landsvirkjun hins vegar útrásarfyrirtækið Hydrokraft ásamt einkafyrirtækinu Landsbankanum og var því vel tekið í ríkisstjórn. Varla hefur nokkrum liðið úr minni að borgarstjórnarmeirihlutinn sprakk nú í haust vegna samvinnu einkafyrirtækja og REI. Össur segist í pistlinum hafa „glott við fót" við fréttir af því að „Landsvirkjun hyggðist nú feta í útrásarspor REI". Hann leggur út af myndbandi sem sýnt var á árshátíð Orkuveitunnar nú í haust og veltir því fyrir sér hví Björn Ingi Hrafnsson, sem sprengdi meirihlutann í borginni, sé svona „skælbrosandi" á myndbandinu. Og skrifar síðan: „Varla hefur hann séð glitta í ósamræmi á milli orða og gjörða Sjálfstæðismanna eftir því hvort þeir eru í borgarstjórn eða landsstjórninni." Össur heldur áfram og vitnar í „BíBí frænda" - en þar á hann væntalega við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, sem með orðum Össurar segir að „þar sé allt í stakasta lagi og allir vinir í þeim skógi." Þá skrifar Össur að "Ef einhver ræfill af samkvæmni er eftir í Styrmi ritstjóra (Morgunblaðsins) á hann engan kost annan en vaða með vélsögina gegn trjánum, sem Friðrik skáti og forstjóri Landsvirkjunar er nú að plánta í nýjan útrásarskóg. Ef hann gerir það ekki, þá er um leið staðfest að mótívasjón hans í hamfarahlaupinu gegn REI var pöntuð árás gegn Vilhjálmi þáverandi Borgarstjóra. Pöntunarfélagið þekkja allir - það eru þeir Davíð, hann sjálfur, Kjartan Gunnarsson og enn einn sem ég þori ekki að nefna til að verða ekki sakaður um að vera rétt einn ganginn að skapa úlfúð innan hinnar friðsönu stórfjölskyldu við ríkisstjórnarborðið í tugthúsinu gamla, sem í daglegu tali gengur undir nafninu Stjórnarráð Íslendinga," segir Össur enn fremur á heimasíðu sinni.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Sjá meira