Einstæður öryrki lá látinn dögum saman Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. desember 2007 18:14 Konan var íbúi í Hátúni 10.
Einstæð kona lá látin í íbúð sinni í Hátúni 10 í meira en viku án þess að vitað væri um afdrif hennar. Hún fannst í fyrradag. Íbúðirnar í Hátúni 10 eru í eigu Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalagsins. Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins, fékk vitneskju um málið í dag og segist líta það mjög alvarlegum augum. Sambærilegt mál kom upp fyrir tveimur árum. „Ég er mjög hryggur og reiður yfir því að þetta skyldi hafa gerst," segir Sigursteinn í samtali við Vísi. Hann segist hafa kallað til sín formann og framkvæmdastjóra hússjóðs Öryrkjabandalagsins, fulltrúa lögreglunnar og yfirmann heimaþjónustu Reykjavíkurborgar til að fara yfir málið um leið og hann frétti af því. „Ég gerði kröfu um það þegar sambærilegt atvik gerðist fyrir tveimur árum, að eftirlit yrði aukið, þannig að atburður eins og þessi gæti ekki endurtekið sig. Þess vegna harma ég mjög að þetta skyldi hafa gerst," segir Sigursteinn. Sigursteinn segir að atvikið verði rannsakað af lögreglunni. Kannað verði hvort einhver öryggisatriði hafi verið brotin. Þá verði farið yfir hvaða þjónustu hinn látni átti rétt á. Sigursteinn segir að farið verði yfir hvers vegna hin látna hafi ekki verið á skrá hjá heimaþjónustu Reykjavíkuborgar og hvers vegna hún hafi ekki fengið þá heilbrigðisþjónustu sem í boði er á svæðinu.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira