Kemur til greina að Alþingi álykti um íslenska málstefnu 7. desember 2007 11:21
Menntamálaráðherra telur koma til greina að þingið álykti sérstaklega um íslenska málstefnu þannig að þingmenn geti rætt oftar þróun tungumálsins. Þetta kom fram í máli hennar í utandagskrárumræðu um nýja ályktun Íslenskrar málnefndar.Það var Katrín Jakobsdóttir, þingkona Vinstri - grænna, sem var málshefjandi og vakti athygli á því að Íslensk málnefnd hefði í fyrsta sinn í ár sent frá sér ályktun um stöðu tungunnar. Sagði Katrín eðlilegt að ræða hana á þingi. Fram hefði komið í ályktuninni að staða tungunnar væri almennt sterk en nokkur atriði þyrfti að staldra við. Þannig benti málnefndin á að tryggja þyrfti stöðu íslenskrar tungu í stjórnarskrá og mikilvægt væri að ríkið og atvinnulífið tryggðu útlendingum sem hér setjast að íslenskukennslu.Þá sagði Katrín að mikilvægt að huga að móðurmálskennslu en bent væri á það í ályktuninni að dregið hefði úr henni á síðustu árum og áform væru um frekari samdrátt. Mun færri tímar færu í móðurmálskennslu í grunnskólum hér á landi en t.d. í Danmörku. Þá vísaði Katrín til orða Sigurðar Konráðssonar hjá Kennaraháskóla Íslands sem hefði bent á að efla þyrfti íslensku í almennu kennaranámi því gert væri ráð fyrir að allir kennarar væru íslenskukennarar.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagðist sjaldan hafa fundið fyrir jafnmiklum vilja til ræktarsemi við tunguna eins og undanfarnar vikur. Tengdi hún það meðal annars 200 ára afmæli þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar í síðasta mánuði. Sagði Þorgerður það trú sína að mikill og lifandi áhugi væri fyrir tungunni því menn væru þess áskynja að sótt væri að henni.Þorgerður benti á að Íslensk málnefnd ynni nú að drögum að íslenskri málstefnu sem yrði kynnt í lok næsta árs. Sagðist hún binda miklar vonir við það starf og vonaðist til að málstefnan yrði lifandi og skýr stefna. Málstefnuna ætti að kynna í ríkisstjórn og ræða og þá teldi hún koma til greina að Alþingi ályktaði sérstaklega um stefnuna þannig að þingmenn gætu rætt hana og tungumálið oftar en nú væri gert. Málstefnu þyrfti að endurskoða í takt við þróun samfélagsins .Margir þingmenn tóku til máls og lýstu yfir ánægju með ályktun Íslenskrar málnefndar. Þá bentu sumir á að það væri ekki sjálfsagt að Íslendingar varðveittu tunguna og mikilvægt væri að tryggja stöðu tungunnar í stjórnarskrá.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira