Innlent

Kemur til greina að Alþingi álykti um íslenska málstefnu

Menntamálaráðherra telur koma til greina að þingið álykti sérstaklega um íslenska málstefnu þannig að þingmenn geti rætt oftar þróun tungumálsins. Þetta kom fram í máli hennar í utandagskrárumræðu um nýja ályktun Íslenskrar málnefndar.

Það var Katrín Jakobsdóttir, þingkona Vinstri - grænna, sem var málshefjandi og vakti athygli á því að Íslensk málnefnd hefði í fyrsta sinn í ár sent frá sér ályktun um stöðu tungunnar. Sagði Katrín eðlilegt að ræða hana á þingi. Fram hefði komið í ályktuninni að staða tungunnar væri almennt sterk en nokkur atriði þyrfti að staldra við. Þannig benti málnefndin á að tryggja þyrfti stöðu íslenskrar tungu í stjórnarskrá og mikilvægt væri að ríkið og atvinnulífið tryggðu útlendingum sem hér setjast að íslenskukennslu.

Þá sagði Katrín að mikilvægt að huga að móðurmálskennslu en bent væri á það í ályktuninni að dregið hefði úr henni á síðustu árum og áform væru um frekari samdrátt. Mun færri tímar færu í móðurmálskennslu í grunnskólum hér á landi en t.d. í Danmörku. Þá vísaði Katrín til orða Sigurðar Konráðssonar hjá Kennaraháskóla Íslands sem hefði bent á að efla þyrfti íslensku í almennu kennaranámi því gert væri ráð fyrir að allir kennarar væru íslenskukennarar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagðist sjaldan hafa fundið fyrir jafnmiklum vilja til ræktarsemi við tunguna eins og undanfarnar vikur. Tengdi hún það meðal annars 200 ára afmæli þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar í síðasta mánuði. Sagði Þorgerður það trú sína að mikill og lifandi áhugi væri fyrir tungunni því menn væru þess áskynja að sótt væri að henni.

Þorgerður benti á að Íslensk málnefnd ynni nú að drögum að íslenskri málstefnu sem yrði kynnt í lok næsta árs. Sagðist hún binda miklar vonir við það starf og vonaðist til að málstefnan yrði lifandi og skýr stefna. Málstefnuna ætti að kynna í ríkisstjórn og ræða og þá teldi hún koma til greina að Alþingi ályktaði sérstaklega um stefnuna þannig að þingmenn gætu rætt hana og tungumálið oftar en nú væri gert. Málstefnu þyrfti að endurskoða í takt við þróun samfélagsins .

Margir þingmenn tóku til máls og lýstu yfir ánægju með ályktun Íslenskrar málnefndar. Þá bentu sumir á að það væri ekki sjálfsagt að Íslendingar varðveittu tunguna og mikilvægt væri að tryggja stöðu tungunnar í stjórnarskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×