Ekki hægt að útiloka að stíflan bresti 20. október 2007 04:00 Urriðafoss er sá vatnsmesti á landinu. Oddviti Flóahrepps segir að ljóst sé að fossinn verði ekki svipur hjá sjón eftir virkjun en á móti komi að náttúruleg flóð af völdum klakamyndunar myndu stöðvast. „
Á þessum fundi komu fram verulegar áhyggjur fólks vegna stíflunnar," segir Aðalsteinn Sveinsson, oddviti Flóahrepps. Hönnuðir Urriðafossvirkjunar kynntu áhættumat vegna hennar fyrir íbúum Flóahrepps í fyrrakvöldi. Urriðafossvirkjun nær til þriggja sveitarfélaga, Ásahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps auk Flóahrepps. Aðeins Flóahreppur hefur ekki gert ráð fyrir virkjuninni í aðalskipulagi sínu. Í áhættumatinu segir að ef verður að byggingu stíflunnar yrði hún staðsett á mjög virku jarðskjálfta- og sprungusvæði. Hættugreining hafi leitt í ljós að mikil sprungugliðnun þvert á stífluna í jarðsjálfta gæti orðið til þess að hún rofnaði þó að hönnun stíflunnar miðist við stærsta jarðskjálfta sem búast megi við á svæðinu. Líkurnar á því væru þó aðeins 1 á móti 10.000. „Niðurstaðan er að ólíklegt er að stíflan bresti auk þess sem ekki myndu verða hamfaraflóð ef svo yrði," segir Aðalsteinn og bendir auk þess á að með stíflu mætti koma í veg fyrir náttúruleg flóð af völdum ísingar. Landsvirkjun hefur fyrirhugað að reisa þrjár virkjanir í Neðri-Þjórsá og nefnast þær Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun. Í júní ákvað sveitarstjórn Flóahrepps að ekki yrði gert ráð fyrir virkjun í aðalskipulagi og segir í samþykkt þeirra um málið: „Meginástæða þess er að sveitarstjórn telur ekki nægilegan ávinning af slíkri virkjun fyrir Flóahrepp og íbúa hans né að bættur verði sá skaði sem áhrif virkjunarinnar hefði á vatnsverndarsvæði, ferðaþjónustu, lífríki í Þjórsá og landnotkun í nágrenni virkjunarinnar." „Landsvirkjun kynnti okkur þá ákveðnar hugmyndir um mótvægisaðgerðir og tókum við málið aftur til athugunar," segir Aðalsteinn. Hann segir þær aðgerðir fyrst og fremst hafa falist í úrbótum á samgöngu- og vatnsveitumálum. Krafðist sveitarstjórnin þess einnig að fá áhættumat vegna framkvæmdanna. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að vegna þeirra kröfu hafi verið ákveðið að flýta vinnu í tengslum við Urriðafossvirkjun til að fá sem fyrst niðurstöðu frá Flóamönnum. Aðalsteinn segir umhverfisáhrif vegna virkjunarinnar verða töluverð en á móti komi að þarna verði um endurnýjanlega orku að ræða. „Við spyrjum okkur samt að því hvern vanti eiginlega þessa virkjun. Okkur er ekki sama hvert orka hennar verður seld og á hvaða verði," segir Aðalsteinn. karen@frettabladid.is
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Bráðabirgðalög um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Ráðist á ungan dreng með piparúða „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Sjá meira